Innlent

Kom með mörð og var kærður

Marðardýr eru sögð geta borið með sér hundaæði.
Marðardýr eru sögð geta borið með sér hundaæði.
Tollstjórinn á Seyðisfirði hafði 5. júní afskipti af manni sem hafði marðardýr meðferðis í bíl sínum þegar hann kom til landsins með ferjunni Norrænu.

Haft var samband við héraðsdýralækni sem upplýsti eigandann um að aflífa þyrfti dýrið á staðnum eða fara með það úr landi.

Eigandanum tókst með brögðum að koma dýrinu undan og lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann það síðan á heimili hans 15. júní. Maðurinn var kærður fyrir brot á lögum um innflutning dýra. Dýralæknir aflífaði dýrið.

Málið er litið alvarlegum augum. Dýrin geta orðið verri skaðvaldar í náttúrunni en minkurinn og borið með sér alvarlega dýrasjúkdóma til landsins. - shá




Fleiri fréttir

Sjá meira


×