Egill krefst skýringa Jón Hákon Halldórsson skrifar 22. júní 2012 09:15 Egill Einarsson, sem einnig er kallaður Gillzenegger.
Egill Einarsson, einnig kallaður Gillzenegger, ætlar að krefjast skýringa á því hvers vegna nauðgunarkæra gegn honum fór jafn langt og raun bar vitni. Þetta segir hann í yfirlýsingu sem hann sendi fréttastofu í nótt. „Eins og gefur að skilja er ég mjög ósáttur við þetta mál og allt sem því tengist. Ég mun óska eftir því við þar til bæra aðila að fá skýringar á því hvað varð til þess að málið fór jafn langt og raun ber vitni? Hvers vegna það tók þennan óratíma að fella það niður og hvort að eitthvað óeðlilegt eða saknæmt hafi átt sér stað í tengslum við kæruna? Hef ég falið lögmanni mínum að koma þeim óskum á framfæri með viðeigandi hætti," segir hann. Egill segir að hann hafi alltaf haldið því fram að nauðgunarkæran væri fráleit og ekkert í málinu benti til sektar, hvorki framburður kæranda eða vitna, né önnur gögn málsins. Hann segir að í rökstuðningi ríkissaksóknara fyrir niðurfellingu málsins sé framburður sinn og Guðríðar um atvik sagður staðfastur og samræmast öðrum gögnum málsins og ekkert bendi til að þau hefðu samræmt framburð til að fegra hlut sinn. Hér eftir fer yfirlýsing Egils: Sem kunnugt er hefur ríkissaksóknari fellt niður nauðgunarkæru á hendur mér og Guðríði unnustu minni. Ég hef hingað til forðast að ræða þetta mál opinberlega, ef frá eru taldar tvær stuttar yfirlýsingar sem ég gaf út um málið þar sem ég ítrekaði sakleysi mitt. Nú, þegar mér hefur borist í hendur rökstuðningur ríkissaksóknara fyrir niðurfellingu kærunnar finn ég mig nú knúinn til, vegna misvísandi viðbragða sem sjá má á internetinu, að koma eftirfarandi á framfæri: Í fyrri yfirlýsingum mínum hélt ég því fram að nauðgunarkæran væri fráleit og ekkert í málinu benti til sektar, hvorki framburður kæranda eða vitna, né önnur gögn málsins. Í rökstuðningi ríkissaksóknara fyrir niðurfellingu málsins er framburður minn og Guðríðar um atvik sagður staðfastur og samræmist öðrum gögnum málsins og ekkert bendi til að við hefðum samræmt framburð til að fegra hlut okkar. Hins vegar telur ríkissaksóknari að ekki verði framhjá því litið að í framburði kæranda var ekki innbyrðis samræmi í skýrslum hennar hjá lögreglu. Og heldur ekki samræmi í því sem haft var eftir henni á Neyðarmóttöku strax í kjölfar hins meinta brots og þess sem hún skýrði frá hjá lögreglu. Þá kemur fram í rökstuðningi ríkissaksóknara að engin réttarlæknisfræðileg gögn sýni fram á að brotið hafi verið kynferðislega á meintum brotaþola í umrætt sinn. Síðan eru mörg önnur atriði, sem ríkissaksóknari tekur ekki fram í rökstuðningi sínum fyrir niðurfellingunni, sem benda ótvírætt til þess að kæran sé ekki á rökum reist. Hingað til hafa allar atburðalýsingar í þessu ömurlega máli, sem birst hafa í fjölmiðlum, einkum DV, komið frá „stuðningsmönnum" stúlkunnar sem kærði okkur. Þessar atburðalýsingar eru í meginatriðum rangar og stundum hreinn uppspuni, eins og til dæmis sú fullyrðing að stúlkan hafi þurft að gangast undir læknisaðgerð eftir samskipti mín við hana. Ekkert slíkt kemur fram í gögnum málsins. Því miður hafa fjölmargir byggt afstöðu sína á grunni þessara röngu upplýsinga, og sumir þeyst fram á ritvöllinn og opinberað sína „ígrunduðu" og „réttlátu" nauðgunardóma yfir mér. Eins og gefur að skilja er ég mjög ósáttur við þetta mál og allt sem því tengist. Ég mun óska eftir því við þar til bæra aðila að fá skýringar á því hvað varð til þess að málið fór jafn langt og raun ber vitni? Hvers vegna það tók þennan óratíma að fella það niður og hvort að eitthvað óeðlilegt eða saknæmt hafi átt sér stað í tengslum við kæruna? Hef ég falið lögmanni mínum að koma þeim óskum á framfæri með viðeigandi hætti. Illgirnin og hefndarhugurinn hjá mörgum þeirra sem tjáðu sig um mig í tengslum við þetta mál ætti að vera öllum íhugunarefni. Háskólakennarar, rithöfundar, embættismenn, stjórnmálamenn og fjölmargir aðrir gengu miklu lengra en eðlilegt getur talist, svo mjög að á tímabili fékk ég það hreinlega á tilfinninguna að það væri einlæg von nokkurra þeirra sem dómharðastir voru, að nauðgun hefði átt sér stað! Þetta ömurlega mál skyldi nýtt sem réttlæting eða vopn í einhverskonar „hugmyndabaráttu", svo ósmekklega sem það nú hljómar. Eða sem vopn í höndum þeirra sem einhverra hluta vegna töldu sig eiga eitthvað sökótt við mig. Örlög og heill stúlkunnar virtust aukaatriði. Eða, hvað annað er hægt að lesa út úr ummælum Sóleyjar Tómasdóttur, borgarfulltrúa Vinstri grænna, á Facebook, þegar hún sagði: „Nú er bara að krossa fingur" og tengdi frétt þess efnis að Ríkissaksóknari væri kominn með málið á sitt borð? Krossa fingur um hvað? Að stúlkunni hafi verið nauðgað eða að saklaust fólk yrði ákært? Þetta mál hefur verið þungbært fyrir mig, unnustu mína og okkar nánustu. Þrátt fyrir sakleysi okkar hefur mannorð okkar beggja beðið alvarlegan skaða. Þar fyrir utan fylgir því nær óbærileg vanlíðan að verða fyrir ásökun um svo alvarlegan glæp. Ofan á það bættist svo mjög einhliða fjölmiðlafár. Að síðustu vil ég ítreka að nauðgun er í mínum huga alvarlegur glæpur. Það er einnig alvarlegt mál að kæra fólk fyrir slíkan glæp að ósekju og ég á engan annan kost en að bera hönd fyrir höfuð mér. Ég vona innilega að þetta mál verði ekki til þess að draga úr trúverðugleika raunverulegra fórnarlamba kynferðisofbeldis, eða möguleikum þeirra að ná fram rétti sínum – en sú hætta er fyrir hendi þegar rangar sakir eru bornar á fólk. Ef svo reynist liggur ábyrgðin ekki hjá mér heldur öðrum þeim sem hafa viljað gera sér mat úr þessu máli. Virðingarfyllst, Egill Einarsson
Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Innlent Fleiri fréttir Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Sjá meira