Innlent

Segja sorglegt að Jóhanna hafi brotið jafnréttislög

Það er sorglegur vitnisburður að Jóhanna Sigurðardóttir, fyrsta konan sem gegnir stöðu forsætisráðherra, hafi gerst brotleg við jafnréttislög landsins, segir í ályktun jafnréttisnefndar Framsóknarflokksins.

Þar eru rifjuð upp þau orð Jóhönnu, sem hún lét falla árið 2007, þess efnis að það væri ólíðandi að forstöðumenn opinberra stofnana eða forráðamenn ráðuneyta mismuni körlum og konum í launum og brjóti þannig jafnréttislög. Augljóst sé að slokknað hafi á kyndli jafnréttisberans, hafi hann einhverntímann logað, segir í ályktuninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×