Hreystimenni hlaupa aftur og aftur upp Esjuna BBI skrifar 22. júní 2012 18:36 Mynd af æfingu fyrir hlaupið. Mynd/Mt. Esja
Á morgun munu hátt í níutíu ofurhugar hlaupa upp og niður Esjuna, aftur og aftur allt að tíu sinnum. Hlaupið nefnist Mt.Esja Ultra og er það fyrsta sinnar tegundar á Íslandi hvað varðar erfiðleikastig, hækkun og vegalengd. „Það er ótrúlegt að 89 manns skrái sig viljugir í að fara oftar en einu sinni á Esjuna," segir Elísabet Margeirsdóttir, verðurkona. Elísabet telur verðurspána fyrir morgundaginn líta vel út. „Þetta er einmitt veðrið sem við báðum um," segir hún en á morgun er útlit fyrir hæga vestlæga átt og 16 - 18°C hitastig. Léttskýjað verður og hætt við stöku skúrum. „Ég held að fólk verði bara ánægt með smá kælingu í skúraformi eftir margra klukkutíma hlaup." Hlaupið verður fram og aftur upp að Steini og niður. Þátttakendur geta valið um þrjár vegalengdir: 2 ferðir upp að Steini, samtals 14 km og 1200m í hækkun, 5 ferðir upp að Steini sem telja 35 km og 3000m hækkun og þeir allra hörðustu fara 10 ferðir upp að Steini sem eru 70 km og 6000m hækkun. Fyrstu menn verða ræstir klukkan fimm í fyrramálið. Fjórir menn munu hlaupa 10 ferðir og tugir manna leggja í hinar vegalengdirnar. Skráningu í hlaupið er lokið en Björn Margeirsson, langhlaupari, var síðastur til að skrá sig og hleypur 2 ferðir á morgun. Skipuleggjendur hvetja sem flesta að koma við og fylgjast með. Gert er ráð fyrir að mesta stemmningin verði um þrjú leytið við Esjustofu þegar fyrstu menn koma í mark. „Þetta verður mögulega sögulegt," segir Elísabet, enda er þetta eitt erfiðasta hóphlaup sem hlaupið hefur verið á Íslandi.
Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Minnst þrjátíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Fleiri fréttir Bein útsending: Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Sjá meira