Gefur egg í Indlandi fyrir þúsund dollara Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar 11. júní 2012 20:00
Heiðrún Arna Friðriksdóttir er tuttugu og fimm ára tveggja barna móðir frá Akranesi. Hún hefur einu sinni gefið egg úr sér á Íslandi og fannst það lítið mál. „þegar ég gaf á Íslandi í fyrra og hugsaði hversu góð gjöf þetta getur verið fyrir fólk sem getur ekki eignast börn og ég get ekki ímyndað mér hvernig það er að geta ekki eignast sín eigin börn og fyrst ég get gefið þessa hjálp þá ákvað ég að gera það" segir Heiðrún Arna. Hún vildi gefa aftur egg en fannst Ísland of lítið land til að gefa oft og leitaði því út fyrir landsteinana og fann fyrirtækið Global Egg Donors. „Ætli það séu ekki svona um tveir og hálfur mánuður síðan ég sótti um og tveimur vikum seinna fékk ég póst um par sem vildi fá mig sem donor." Hún hefur aldrei hitt sænska parið sem fær eggin hennar en þeir munu notast við indverska staðgöngumóður og er þetta annað barnið þeirra í gegnum Global Egg Donors. „Þær eru allar indverskar og búa á hótelinu fyrir ofan klinikið og fá vel greitt fyrir þetta og mat og hreint vatn og menntun svo þetta er „win win" fyrir alla í rauninni. Ég fæ 130 þúsund krónur og svo frítt flug og gistingu og dagpeninga fyrir mat, svo ég kem út í miklum plús, ekki bara andlega." Hún hefur þurft að sprauta sig með hormónum og farið í læknisskoðanir í Indlandi, á miðvikudaginn fer svo sjálf eggjaheimtan fram. Hún segir aðstöðuna mjög góða en fimm aðrar stelpur frá hinum ýmsu löndum eru með henni í ferlinu. „Alveg nýjasta tækni og allt rosalega fínt, hótelið er alveg fjögurra stjörnu og við erum alltaf sóttar og skutlað á klinikkið og þetta er miklu betra en ég bjóst við í rauninni" Henni finnst eggjagjöf og staðgöngumæðrun vera tvennt ólíkt siðferðislega. „Ég held það sé erfitt í litlu landi eins og á Íslandi að vera með staðgöngumæðrun, það er svo auðvelt að misnota þetta líka en hérna er mikil og stór laga umgjörð í kringum staðgöngumæðrun, þess vegna er hún lögleg. Ég lít aldrei á þetta sem mín börn og ég held að það sé mjög mikilvæg hugsun, ekki að þú eigir börn einhvers staðar annars staðar, mín börn eru bara þau sem ég geng með og á með mínum manni og ég held að það sé sú hugsun sem þær sem gefa egg þurfa að hafa." segir Heiðrún en efast um að hún muni aftur gefa egg með þessum hætti.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Innlent Fleiri fréttir Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Sjá meira