Trúboð bannað í hafnfirskum skólum Jónas Margeir Ingólfsson skrifar 11. júní 2012 20:00 Hafnarfjarðarkirkja.
Trúar- og lífsskoðunarfélögum hefur nú verið bannað að stunda trúboð innan veggja leik- og grunnskóla Hafnarfjarðarbæjar á skólatíma. Viðmiðunarreglur þess efnis voru samþykktar í morgun. Sóknarpresturinn kveðst þó ánægður með reglurnar og hrósar bæjarfélaginu fyrir gott samtal. Hafnarfjarðarbær fetar nú í fótspor Reykjavíkurborgar með viðmiðunarreglunum. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, formaður fræðsluráðs bæjarins, segir reglurnar eiga sér langan aðdraganda. „Í staðinn fyrir að bíða eftir því að það verði nauðsynlegt að setja einhverjar svona reglur þá þótti okkur eðlilegt að setjast niður og skoða hvernig þetta er í dag. Í raun og veru eru þessar reglur skráning um með hvaða hætti skólarnir framkvæma þessi samskipti.“ Hún segir rauða þráðinn í reglunum vera að trúfélög boði ekki trú á skólatíma. „Hins vegar er þarna ein setning sem segir að reglurnar nái ekki til efnis sem auki menningarlæsi. Það er að segja ef efni er notað í kennslufræðilegum tilgangi.“ Sömuleiðis er tekið fram í reglunum að sígildir söngvar, dansar, leikir sem teljist hluti af gamalgrónum hátíðum haldi sessi sínum í árstíðabundnum skemmtunum, þar með taldir jólasálmar og helgileikir. Þórhallur Heimisson, sóknarprestur í Hafnarfjarðarkirkju, kveðst ánægður með að Hafnarfjarðarbær hafi átt gott samtal við alla áður en reglurnar voru settar. „Okkur gafst gott tækifæri til að útskýra okkar stöðu. Hvernig samskiptin eru á milli kirkju og skóla. Þar kom vel í ljós að það hefur aldrei verið þannig hér í Hafnarfirði að kirkjan sé eitthvað að troða sér inn. Skólarnir hafa haf forgang og þeir setja reglurna. Þeir ráða hvernig þetta er gert.“ Hann segir bæinn þannig jafnframt hafa unnið útfrá hugmyndum og andsvörum kirkjunnar. „Mér finnst að þegar öll þessi vinna hefur verið lögð fram geti allir verið sáttir. Auðvitað er gott að hafa svona reglur til að vinna út frá. Þetta eru, eins og bæjarstjórn segir, viðmiðunarreglur og það þarf að taka tillit til allra. Mér finnst það vera gert mjög vel þarna.“
Mest lesið Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Innlent Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Innlent Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Innlent Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Innlent Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent Fleiri fréttir Arion hækkar vexti á ný Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Sjá meira