Með hausinn af Gretti úti í garði 1. desember 2012 18:00 Axel Sigurgeirsson á Bjargi Axel er hærður vel og heldur rauða litnum á sextugasta og fjórða aldursári. Það segir hann Grettisgenunum að þakka.
Grettissöguflandrið hefst í Viðvík þar sem Þorbjörn öngull, banamaður Grettis, bjó. Ekki má þó gera minna úr hlut Þuríðar, fóstru öngulsins, en það voru vélráð hennar sem réðu úrslitum í viðureign Skagfirðinga við Gretti. Í Viðvík býr nú Kári Ottósson og Guðríður Magnúsdóttir kona hans. Kári var óvopnaður þegar blaðamann bar að garði en þá hafði bóndinn nýlokið heyönnum. Hann var ekki lengi að taka við sér þegar blaðamaður spurði hvort Grettis saga væri ábúendum í Viðvík hugleikin. Seiðkonan hefur áhrif enn„Það er varla annað hægt,“ segir Kári og snýr sér til norðurs. „Sérðu þúfuna þarna?“ Blaðamaður játar því. „Það sést nú kannski ekki vel héðan en þarna undir er Kirkjusteinn. Þar undir liggur fóstran Þuríður.“ Þeir ganga í átt að steininum. Þuríður þessi var seiðkona og er skemmst frá því að segja að fjölkynngi hennar beit betur en vopn allra Skagfirðinga þegar kom að atlögunni að Gretti. Hún lagði álög vond á rekavið nokkurn og lét hann svo reka að Drangey þar sem þræll Grettis tók við honum. Þegar Grettir ætlaði að höggva viðinn rann saxið af skaftinu svo garpurinn hjó óvart í læri sér. Komst sullur mikill í sárið svo hann var orðinn helsár þegar Þorbjörn öngull loks leitaði lags og sótti að honum liggjandi á fleti sínu. „Ég veit ekki hvort hægt sé að segja að hún sé enn að,“ segir Kári þegar komið er að Kerlingarsteini. „En hitt veit ég að það fer alltaf að rigna þegar það er slegið hér á blettinum, það bregst ekki. En að öðru leyti hefur hún hægt um sig,“ segir bóndinn og brosir við. Á ofanverðri 19. öld dvaldi í Viðvík ungur maður, Rögnvaldur Jónsson, síðar ábúandi á Þröm. Sagt er að hann hafi séð til konu nokkurrar sem vísast var ekki af þessum heimi og var það mál manna að þar hafi Þuríður verið á ferli. Þar sem öngullinn geymdi GrettishausEn hún er ekki sú eina sem á jarðneskar leifar sínar í túninu við Viðvík því hausinn á Gretti hafði þar viðkomu. Þannig er mál með vexti að Þorbjörn öngull hugðist fá fé fyrir vígið og í þeim tilgangi ætlaði hann að mæta með hausinn á þing. Grettisbúr var sá staður nefndur er höfuðið var geymt svo blaðamaður spyr, meðan rölt er að tóftum gamla fjárhússins, hvort vitað sé hvar þetta var. „Mér skilst að Grettisbúr hafi verið við fjárhúsin gömlu hér í Viðvík og þau voru í þessum tóftum hérna,“ segir hann og stígur fæti á tóftir fyrir norðan kirkjuna. „Ætli Grettisbúr hafi bara ekki verið hér,“ segir Kári þegar hann hefur fundið álitlegan stað í tóftunum. Konur eru sterkari en karlarViðvík hefur yfir fleiri sögufrægum ábúendum að státa en þar bjó Þorgils skarði Böðvarsson eins og sagt er frá í Sturlungu. Var hann gleðimaður mikill svo samkvæmislífið var með miklum ágætum í þá tíð. En fleiri gleðimenn koma við sögu á flandrinu því blaðamaður lagði lykkju á leið sína út á Reykjaströnd og kom við á Glaumbæ. Þar bjó Glaumur á sínum tíma og hafði Grettir Ásmundarson svo gaman af þeim fýr að hann tók karlinn með sér til Drangeyjar. Eftir víg Grettis gerðist hins vegar gamanið grátt hjá Glaumi og þótti Þorbirni öngli hann svo leiðinlegur að hann drap hann til að losna við vælið í honum. Loks er komið að Reykjum en þar er gott að bregða sér í sjósund vilji maður upplifa Grettlu en Grettir kom þar að landi þegar hann synti frá Drangey. Er hann lá nakinn í lautu eftir sundið kom þar að griðkona nokkur og gerði að gamni sínu þegar hún sá hvað hann var lítt vaxinn niður. Nú er hins vegar vel látið að sundgestum á Reykjum. Þegar blaðamaður fékk sér kaffi hjá Erlu Guðmundsdóttur sem stóð vaktina við Grettislaug horfði hún út í Drangey og segir stolt: „Þarna höfum við sönnun þess að karlar eru veikbyggðari en konur.“ „Nú?“ spyr blaðamaður og svelgist á kaffinu. „Jú, þarna stendur kerlingin enn,“ segir hún og bendir á drangann sem stendur skammt frá Drangey. „Þarna var karlinn líka en hann hrundi í hafið í jarðskjálfta miklum árið 1755. En konan stendur þarna enn eins og sjá má.“ Það var ekki annað að gera fyrir blaðamann en kyngja því. Breiðu spjótin tíðkast ekki á BjargiEkki dugir á Grettissöguflandri að vafra aðeins um vígaslóðir. Rétt er að koma við á Bjargi í Miðfirði þar sem Grettir bjó. Þegar blaðamaður kemur að Bjargi ber hann að dyrum en enginn opnar. Fer hann þá að litast um og sér til Karls Sigurgeirssonar sem er að færa heyrúllurnar að fjárhúsunum. Fljótlega er farið að ræða um Gretti svo blaðamaður spyr hvort bændur á Bjargi séu betri vinnumenn en Grettir forðum. Karl kemur strax sínum manni til varnar. „Grettir var nú ekkert slæmur vinnumaður,“ svo kemur á hann hik. „Ja, reyndar fór hann illa með gásirnar, hann sneri þær úr hálsliðnum enda þótti honum það löðurmannlegt verk að gæta gása. Jú, og reyndar teljast það ekki góð bústörf að flá hesta en það má ekki gleyma því að þegar Grettir tók við sér var hann manna duglegastur. Eins og í sjóferðinni til Noregs þegar hann loksins fékkst til að hætta að skjalla skipstjórafrúna í sökkvandi skipi og tók til við að ausa bátinn, þá jós hann á við átta manns og þurrkaði bátinn upp. Þetta leika nú ekki allir vinnumenn eftir.“ Hausinn í eldhúsglugganumBlaðamaður spyr um Axel, bróður Karls, sem býr að Bjargi en Karl býr á Hvammstanga þó þeir bræður reki búið saman. „Hann er heima,“ segir hann. „Kom hann ekki til dyra? Þá hefur hann ekki heyrt í þér. Opnaðu þá bara og farðu inn.“ Ekki leist blaðamanni á þetta en lætur sig hafa það og gengur inn í bæinn. Hann er kominn inn á gang þegar hann minnist þess að líklegast sé ráðlegast fyrir bóndann að koma ekki til dyra á Bjargi því þess er skemmst að minnast að Atli, bróðir Grettis, fór eitt sinn til dyra til þess eins að fá spjót í gegnum sig miðjan. Bar hann sig vel þrátt fyrir áfallið og sagði: „Tíðkast nú hin breiðu spjótin,“ en féll niður dauður að svo sögðu. Axel var hins vegar óvopnaður þegar hann kom fram á gang. Blaðamaður gerir grein fyrir erindi sínu og segir að Karl hafi sagt sér eitt og annað um staðhætti. „Komdu og fáðu þér kaffi,“ segir Axel og blaðamaður eltir hann inn í eldhús. „Sagði Kalli þér frá þessu?“ spyr hann og lítur út um eldhúsgluggann en þaðan blasir við steinn nokkur á túninu. „Þarna er Grettisþúfa,“ segir Axel og réttir blaðamanni kaffibollann. „Er hausinn þarna undir?“ spyr blaðamaður eins og barnið. „Yes,“ svarar Axel með dularfullum svip. „Þetta var níðingsverk“Grettir er greinilega ljóslifandi í huga bóndans á Bjargi því ekki er hann fyrr sestur en hann fer að ræða málefni Grettis af miklum þunga. „Þeir ráðlögðu Þorbirni að fara ekki með höfuðið á þing því hann myndi ekkert fá fyrir það.“ Svo horfir hann í augu blaðamanns og líklega hafa svo leiftrandi augu ekki litið nokkurn mann frá því Glámur horfði í augun á Gretti forðum daga. „Enda var þetta níðingsverk,“ segir hann af miklum þunga. Svo fær Axel sér kaffisopa og lítur svo aftur á blaðamann en þá með strákalegu brosi og bætir við: „Það verður að hafa gaman af þessu.“ Þegar blaðamaður hefur útskýrt flandur sitt segir bóndi: „Það er verst að ekki er búið á Þórhallsstöðum þar sem Grettir og Glámur áttust við.“ Þá er aftur hið ábúðarfulla augnaráð komið upp. „Það var hrikalegt,“ segir Axel og svo rekur hann orðaskipti og viðureign Grettis og Gláms af svo mikilli innlifun að það er engu líkara en glíman hafi farið fram deginum áður. Svo verður bóndinn meyr þegar talið berst að Ásdísi móður Grettis en hún hefur verið skáldum táknmynd um móðurást. Heimalningur gætir GrettisÞótt ábúandinn á Bjargi sé vinveittur komumanni var blaðamanni veitt aðför við bæinn. Þegar hann ætlaði að fara að Grettisþúfu kom þar að heimalningur svartur mjög og hleypur að honum með litlu hornin sín og ægilegt jarm. Var honum heitt í hamsi og er ekki annað hægt en virða hann fyrir hugrekkið en aflsmunir eru allnokkrir þegar lamb og fullvaxta Arnfirðingur eigast við. Þó nokkurt skáldaleyfi sé til siðs í Íslendingasögum væri fulllangt gengið að segja að Grettir hafi tekið sér bólfestu í heimalning þessum.
Mest lesið Bandaríkjamenn gera loftárásir á Íran Erlent Ísraelar bíði ekki eftir grænu ljósi Trump Erlent Átta látnir hið minnsta eftir að kviknaði í loftbelg Erlent Sigríður fannst heil á húfi Innlent Tókst að leysa alla hvalina úr fjörunni Innlent Stunda njósnir og hafa athafnað sig á Íslandi Innlent Mikilvægt að fólk þurfi ekki að flýja húsnæði vegna ofnæmis Innlent Þriðjungur þjóðarinnar á Chess.com Innlent „Myndi ekki mæla með þessu við nokkurn mann“ Innlent Fjörutíu grindhvalir fastir í Ólafsfirði Innlent Fleiri fréttir Tókst að leysa alla hvalina úr fjörunni Mikilvægt að fólk þurfi ekki að flýja húsnæði vegna ofnæmis Þriðjungur þjóðarinnar á Chess.com „Glæpsamlegar árásir,“ gæludýr í fjölbýli og gleði með Messi Fjörutíu grindhvalir fastir í Ólafsfirði Braust inn í íbúð í Laugardalnum og allir voru heima Lakasta þátttakan meðal kynsegin fólks Stunda njósnir og hafa athafnað sig á Íslandi Sigríður fannst heil á húfi Úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna alvarlegrar stunguárásar Þyrlan send út vegna göngumanns í sjálfheldu Samningur í höfn: „Búið að skemma ansi mikið fyrir okkur“ Ógnarhópar með tengsl við Kína, Aþena og hinseginhátíð í Hrísey Sæki um íslenska vegabréfsáritun til að ferðast annað „Myndi ekki mæla með þessu við nokkurn mann“ Kattholt yfirfullt Steypumót féll á starfsmann byggingarfyrirtækis Bæta ekki fallvarnir við veginn: „Þetta er eilífur slagur“ Tékkneski og bandaríski herinn ásamt flugsystrum á Akureyri Þinglok hvergi í augsýn: „Málþóf! Málþóf!“ Segir komu írsku lögreglunnar marka tímamót í leitinni að Jóni Þresti Vinnuslys í Laugardal þar sem maður fékk járnstöng í andlitið Ísland tekur þátt í aðgerðum gegn skuggaflota Rússlands Óttast að boð og bönn ráðherra muni setja verslanir í þrot Leit að Sigríði heldur áfram um helgina Kenningar um hvarfið, uggandi rafrettusalar og málabunkinn Flugvél á leið til Íslands lent í Manchester Hörður Svavarsson er látinn Allir úr stærsta árgangi sögunnar fengu inni Lýsa eftir Hlyni Sjá meira