Innlent

Þrír til fjórir borgarísjakar við Vestfirði

Veðurfræðingur segir ólíklegt að ísbirnir séu á jökunum.
Veðurfræðingur segir ólíklegt að ísbirnir séu á jökunum.
Að minnsta kosti þrír borgarísjakar eru nú við norðvestanverðar Íslandsstrendur. Sá sem er næst landi var einungis um níu mílur frá Straumnesi á Vestfjörðum í gærkvöld.

„Þetta er hættulegt. Þeir eru á þannig svæði og svo skammt frá landi,“ segir Björgólfur Ingason, varðstjóri hjá Landhelgisgæslunni „Það má alveg búast við því að það sé meira en búið er að tilkynna okkur um undanfarna daga.“

Landhelgisgæslunni hafa borist reglulegar tilkynningar síðustu daga um borgarísjaka við norðvestanvert landið. Gæslan hefur staðfest að ísjakarnir séu að minnsta kosti þrír, en að öllum líkindum séu þeir fjórir, að sögn Björgólfs.

Alls bárust þrjár tilkynningar til Landhelgisgæslunnar í gærdag og hafa þær komið með einhverjum hléum undanfarna daga. Björgólfur segir að miðað við vindátt og veðurfar sé ekki ólíklegt að hröngl og bitar brotni af jökunum og slíkt geti verið mjög erfitt að sjá og því orðið afar hættulegt skipum.

Fram kemur á vef Veðurstofu Íslands að nokkrar tilkynningar hafi borist um hafís á síðustu dögum. Þar stendur að fram hafi komið í einni tilkynningunni að um „heljarinnar hlunk“ hafi verið að ræða.- sv




Fleiri fréttir

Sjá meira


×