Af ávöxtunum skuluð þið þekkja þá Guðmundur Gunnarsson skrifar 7. nóvember 2012 06:00 Ólafur Stephensen, ritstjóri Fréttablaðsins, og Þorsteinn Pálsson, fyrrv. ráðherra og sendiherra, hafa tekið höndum saman um að skrifa reglulega í Fréttablaðið pistla með það að markmiði að grafa undan trúverðugleika tillagna stjórnlagaráðs. Þorsteinn líkti nú um helgina tillögum stjórnlagaráðs við óvandað smjör og bendir á að hér á landi sé einmitt regluverk sem verndar þá framleiðendur sem eru valdhöfunum þóknanlegir hverju sinni. Framleiðsla þeirra fari milliliðalaust í gæðaflokk. Þessu regluverki var komið á af þeim flokki sem hefur verið hér við völd frá lýðveldisstofnun fram yfir Hrun. Regluverki sem færir mikið til fárra og flokkurinn beitir öllum ráðum til þess að vernda þetta kerfi. Nýlega var ákaflega upplýsandi þáttur í sjónvarpinu um Teboðshreyfinguna, þar sem sýnt var fram á hvernig þeir sem hafa fjármagnið og völdin, hafi á sínum snærum fjölmiðlafólk sem spinni ferli með röngum fréttum, og heimatilbúnum skýrslum. Þar er markvisst spilað á hégómagrind nytsamra sakleysingja sem fá tækifæri til þess að upplifa sig sem stjörnur í spjallþáttum og á síðum fjölmiðla í eigu auðmanna. Fréttamenn og spjallþáttastjórnendur taka endurtekið við þá viðtöl sem beint er markvisst inn á brautir reistum á spuna valdhafanna. Mattheus sagði: „Varist falspámenn. Þeir munu koma til ykkar í sauðaklæðum, en innra eru þeir gráðugir vargar. Af ávöxtunum skuluð þið þekkja þá.“ Hér heima blasir við okkur nákvæmlega það sama. Hinum nytsömu sakleysingjum er stillt upp fremst í fjölmiðlum valdastéttarinnar. Hvert er spjótunum beint? Jú, að starfsfólki stéttarfélaga og lífeyrissjóða. Sjóðsfélagar lífeyrissjóða eru miskunnarlaust fordæmdir fyrir það eitt að reyna að verja ævisparnað sinn. Örorku- og lífeyrisþegar sitji ásamt starfsfólki stéttarfélaganna á ránsfeng sem þeir hafi tekið ófrjálsri hendi frá heimilunum. Þeir sem skrifa í miðopnur fjölmiðla valdhafanna halda því að almenningi að meðal þessa fólks sé að finna þá sem keyrðu þjóðina fram af brúninni. Öllum ráðum beitt til þess að beina sjónum almennings frá valdhafahópnum, sem tryggilega heldur sig í felum. Í spjallþáttum eru reglulega leiddir fram þátttakendur sem fullyrða að allir starfsmenn stéttarfélaganna séu glæpahyski og eru ekki krafðir um skýringar. Hér vísa ég m.a. til ummæla sem sett voru fram í Silfri Egils 4. nóv. Sams konar vinnubrögðum er beitt í öðrum spjallþáttum og samsamar sig fullkomlega aðferðum Teboðshreyfingarinnar. Athyglinni er markvisst beint frá atriðum sem þyrfti að skoða og viðtölum við einstaklinga sem stóðu uppi með digra sjóði eftir Hrunið og hafa hagnast um milljarða króna á kostnað launamanna. Starfsmenn stéttarfélaganna eða lífeyrissjóðanna eru ekki meðal þessara auðmanna, þaðan af síður lífeyris- og örorkuþegar. Ólafur og Þorsteinn halda því fram að tillögur stjórnlagaráðs séu ómögulegar og unnar í miklum flýti. Engin rök koma, engar ábendingar. Markvisst sniðganga þeir þá gríðarlegu forvinnu sem lá á borðum stjórnlagaráðs þegar ráðið hóf störf. Í ráðinu sat fólk sem hafði til að bera umtalsverða þekkingu á málinu, fólk sem kom úr flestum geirum samfélagsins. Öll þessi vinna var unnin fyrir opnum tjöldum og mjög margir höfðu samband við ráðið og komu á framfæri tillögum og ráðleggingum, þar á meðal fjölmargir innlendir og erlendir sérfræðingar. En til ráðsins barst ekki ein einasta tillaga frá þeim Þorsteini eða Ólafi, þaðan af síður frá þeim þingmönnum sem hafa gagnrýnt störf stjórnlagaráðs. En sama dag og stjórnlagaráð skilaði inn sínum tillögum hófst markvisst niðurrifsstarf samkvæmt starfsreglum Teboðshreyfingarinnar. Frumvarpið er nú búið að vera eitt og hálft ár í þinginu, og þingmenn flokksins og dálkahöfundar valdastéttarinnar hafa beitt öllum ráðum til þess að koma í veg fyrir málefnalega umræðu í þinginu. Valdastéttin ætlar enn einu sinni að koma málinu í nefndir og drepa því á dreif, eins og m.a. Þorsteinn hefur verið virkur þátttakandi í á sínum stjórnmálaferli. Frumvarp stjórnlagarráðs er mun betra og hefur fengið mun betri viðtökur hjá þjóðinni en valdastéttin ætlaði og hún er að fara á taugum. Fjölmargir erlendir sérfræðingar hafa hlaðið lofsorði á frumvarpið og hingað streyma erlendir fréttamenn til þess að fylgjast með framvindu eftirtektarverðrar lýðræðisbaráttu almennings gegn þeim sem hafa ástundað stórtæka hrifsun á völdum og þjóðarauðnum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Listin að blekkja heila þjóð Halldóra Mogensen Skoðun Ertu ekki hress? Sigurbjörg J. Helgadóttir Skoðun Slapp lifandi út af elliheimili Margrét Sigríður Guðmundsdóttir Skoðun Strætisvagni ekið á 150 km hraða í gegnum íbúðarhverfi við grunnskóla - „Stórkostlegt sjónarspil“ Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir Skoðun Er Kristrún Frostadóttir viljandi að reyna að leiða þjóðina inn í ESB? Gunnar Ármannsson Skoðun Er fagmennska kennara einskis virði? Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Mataræði stéttaskiptingarinnar: Þegar hollusta verður forréttindi Steinar Björgvinsson Skoðun Lögreglu-Ríkið Ólafur Stephensen Skoðun Vandinn er ekki lóðaskortur Óli Örn Eiríksson Skoðun ADHD og hvatvísi Hjördís María Karlsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Sögnin að banna Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar Skoðun Hvað sagði konan? G.Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Öflugur framhaldsskóli á Suðurnesjum er réttlætismál Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við stöndum á tímamótum Ellý Tómasdóttir skrifar Skoðun Samkeppnisreglur sem myndlistarmenn hafa komið sér saman um Emma Heiðarsdóttir,Eva Ísleifs,Jóna Hlíf Halldórsdóttir,Unndór Egill Jónsson skrifar Skoðun Námsárangur í frjálsu falli — hversu lengi ætlum við að horfa á? Nína Berglind Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þjóð í vaxtafjötrum hafta Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Samningsmarkmið Íslands mega ekki vera leyndarmál Júlíus Valsson skrifar Skoðun Dánaraðstoð og hjúkrunarfræðingar: Hvað segja gögnin? Bjarni Jónsson skrifar Skoðun Lögreglu-Ríkið Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Þarf einhverja yfirbyggingu í skólamálum Mosfellsbæjar? Haukur Skúlason skrifar Skoðun Verkin tala! Kristinn Jakobsson skrifar Skoðun Vandinn er ekki lóðaskortur Óli Örn Eiríksson skrifar Skoðun Af hverju? - Af hverju ekki? Halldór Bachmann skrifar Skoðun Er staða Garðabæjar jafn sterk og við höldum? Tinna Borg Arnfinnsdóttir ,Hreiðar Jónsson skrifar Skoðun Er fagmennska kennara einskis virði? Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Að þora að vera til fyrirmyndar Trausti Jóhannsson skrifar Skoðun Orkan sem skapar verðmæti Sævar Freyr Þráinsson skrifar Skoðun Er Kristrún Frostadóttir viljandi að reyna að leiða þjóðina inn í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Eru 700 milljónir á ári ekki miklir peningar? Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Ertu ekki hress? Sigurbjörg J. Helgadóttir skrifar Skoðun Tölum um samfélagið okkar Jónína Margrét Sigmundsdóttir skrifar Skoðun Umferðin vex í Hafnarfirði – hvað ætlum við að gera öðruvísi? Stefán Már Víðisson skrifar Skoðun Listin að blekkja heila þjóð Halldóra Mogensen skrifar Skoðun Hagsmunir launafólks og Evrópusambandið Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Rjúfum vítahring olíunnar Guðjón Hugberg Björnsson skrifar Skoðun Dómar eiga að hafa tilgang Védís Einarsdóttir skrifar Skoðun Vandamál leikskólanna verða ekki leyst nema með aðkomu ríkisins Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar Skoðun Mannréttindi í hættu í yfirfullum fangelsum Tinna Eyberg Örlygsdóttir skrifar Skoðun Ný matarstefna Reykjavíkurborgar – hvað skiptir raunverulega máli? Anna Sigríður Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Strætisvagni ekið á 150 km hraða í gegnum íbúðarhverfi við grunnskóla - „Stórkostlegt sjónarspil“ Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir Skoðun
Skoðun Öflugur framhaldsskóli á Suðurnesjum er réttlætismál Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar
Skoðun Samkeppnisreglur sem myndlistarmenn hafa komið sér saman um Emma Heiðarsdóttir,Eva Ísleifs,Jóna Hlíf Halldórsdóttir,Unndór Egill Jónsson skrifar
Skoðun Námsárangur í frjálsu falli — hversu lengi ætlum við að horfa á? Nína Berglind Sigurgeirsdóttir skrifar
Skoðun Er staða Garðabæjar jafn sterk og við höldum? Tinna Borg Arnfinnsdóttir ,Hreiðar Jónsson skrifar
Skoðun Er Kristrún Frostadóttir viljandi að reyna að leiða þjóðina inn í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar
Skoðun Vandamál leikskólanna verða ekki leyst nema með aðkomu ríkisins Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar
Skoðun Ný matarstefna Reykjavíkurborgar – hvað skiptir raunverulega máli? Anna Sigríður Ólafsdóttir skrifar
Strætisvagni ekið á 150 km hraða í gegnum íbúðarhverfi við grunnskóla - „Stórkostlegt sjónarspil“ Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir Skoðun