Innlent

Andrea segir fyrstu tölur vonbrigði - Þóra bara glöð

„Þetta er í samræmi við skoðanakannanir, en auðvitað ákveðin vonbrigði," sagði Andrea J. Ólafsdóttir forsetaframbjóðandi þegar hún var spurð um fyrstu viðbrögð eftir að tölur úr Norðausturkjördæmi voru kynntar. Raunar var aðeins búið að telja þúsund atkvæði en Andra hlaut 18 atkvæði og er því með 1,8 prósent.

Þóra Arnórsdóttir hlaut 359 atkvæði en hún var bjartsýn. „Bara glöð," sagði hún.

Ari Trausti Guðmundsson var einnig sáttur við sitt, en hann hlaut 104 atkvæði. Herdís Þorgeirsdóttir sagði niðurstöðuna í samræmi við skoðanakannanir, en þegar hún var spurð um orð hennar að lítið væri að marka skoðankannanir svaraði hún: „Við skulum bíða. Þetta eru bara fyrstu tölur."

Ólafur Ragnar Grímsson tekur varlega í tölurnar og telur réttast að bíða eftir frekari tölum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×