Þegar er unnið út frá nýrri auðlindastefnu 17. september 2012 05:00 Fundur auðlindastefnunefndar í ágúst í fyrra Skýrsla auðlindastefnunefndar verður kynnt í dag, mánudag. Þegar hefur verið hrint í framkvæmd ýmsum tilmælum úr skýrslunni. Fréttablaðið/GVA
Þegar er hafin frumvarpsgerð innan ráðuneyta um hvernig auðlindastefna stjórnvalda verður innleidd. Stefnan liggur nú fyrir en Auðlindastefnunefnd skilar lokaskýrslu sinni í dag. Horfið er frá stofnun Auðlindasjóðs, tímabundið, en í þess stað verður stofnaður Auðlindareikningur sem hefur með höndum að ráðstafa auðlindaarði á sýnilegan hátt. Vinna Auðlindanefndar hefur frá skipun snúist um hvernig handhafar sérleyfa eru valdir, til hve langs tíma leyfin gilda og hvernig mögulegum umframarði, auðlindarentu, er skipt milli sérleyfishafa og þjóðarinnar. Búið er að byggja upp rannsóknir og ráðgjöf vegna ákvarðana um verndun og nýtingu auðlinda auk eftirlits. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er unnið að stofnun miðstöðvar auðlindaumsýslu í fjármálaráðuneytinu, en það er gerlegt án lagasetningar, og er innan ráðuneytisins unnið að frumvarpi um fjárreiðulög þar sem auðlindareikningur kemur fram. Í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu er hafin vinna við að skoða nýtingartíma orku- og vatnsauðlindarinnar. Auðlindastefnan snertir beint lengd nýtingarsamninga í nýjum lögum um stjórn fiskveiða, svo dæmi sé tekið. Er ekki annað að skilja en mælt sé með styttri nýtingarsamningum en rætt hefur verið um til þessa. Í skýrslunni, sem í raun markar auðlindastefnu stjórnvalda, er ekki gert ráð fyrir sjóðssöfnun í Auðlindasjóð, heldur að arðinum verði strax ráðstafað með sýnilegum hætti í verkefni og málaflokka af fjárveitingavaldinu. Unninn verður auðlindareikningur þar sem birtar verða tekjur þjóðarinnar af auðlindum sínum, sem eru í eigu eða í umsjón ríkisins. Gert er ráð fyrir að auðlindareikningurinn verði hluti ríkisreiknings og fjárlaga og birtur sérstaklega með fjárlagafrumvarpi hvers árs ásamt greinargerð. Auðlindasjóðurinn, sem lengi hefur verið í umræðunni, gæti þó komið til ef arður myndast af auðlind eins og olíu á Drekasvæðinu. Þá er mælt með að frumkvæði verði haft að stofnun sjóðs sem farið yrði með í anda líkra erlendra sjóða. Er norski olíusjóðurinn sérstaklega nefndur. Auðlindastefnunefnd ályktar að ákvæði um ævarandi þjóðareign á auðlindum verði sett í stjórnarskrá Íslands. svavar@frettabladid.is
Mest lesið Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Erlent Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Erlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Innlent Fleiri fréttir Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Sjá meira