Gætu skapað 5.000 ný störf 15. september 2012 06:30 Skýrsla Íslandsbanka um orkumarkaðinn var kynnt á Nauthóli í gærmorgun. Þar kom meðal annars fram að íslensk sérþekking í geiranum væri í útrás.
Ef ráðist yrði í allar fyrirliggjandi virkjanaframkvæmdir á Íslandi myndi orkuframleiðsla Íslendinga aukast um rúm 42 prósent. Yrðu þær allar að veruleika gætu skapast um fjögur til fimm þúsund bein störf. Fjárfestingaþörf vegna þessara verkefna er yfir 300 milljarðar króna fyrir utan nauðsynlegar breytingar á orkuflutningskerfinu. Þetta kemur fram í skýrslu Íslandsbanka um orkumarkaðinn sem kynnt var í gærmorgun. Í skýrslunni kemur fram að Ísland sé í þrettánda sæti á meðal Evrópuþjóða þegar kemur að raforkuframleiðslu úr endurnýjanlegum auðlindum. Ísland er hins vegar með langmestu endurnýjanlegu raforkuframleiðsluna í heiminum miðað við höfðatölu. Alls eru fjórtán virkjanaframkvæmdir í bið eða til skoðunar hjá Landsvirkjun, Orkuveitu Reykjavíkur (OR) og HS Orku. Bygging einnar þeirra, Búðarhálsvirkjunar, hófst haustið 2010 og á að ljúka í lok næsta árs. Orkan úr henni mun fara til álversins í Straumsvík. Áætlanir gera ráð fyrir að framkvæmdir við byggingu hinna þrettán hefjist á árunum 2012 til 2015. Sex þeirra eru enn ekki komnar með tilgreind orkukaup en sjö eiga að sjá álverinu í Helguvík fyrir orku, náist samkomulag við eiganda þess, Norðurál, um verð. Samanlagt uppsett afl þessara fjórtán virkjanakosta er 995 megavött. Því er um að ræða aukningu upp á rúm 42 prósent frá því sem nú er framleitt af orku hérlendis. Í skýrslunni segir að „flestar þessar virkjanir eru á útboðshönnunarstigi, þ.e. allri verkhönnun er lokið og hægt er að ráðast í verkefnin með stuttum fyrirvara svo fremi sem kaupandi að orkunni er til staðar […] Ef allar ofangreindar fyrirhugaðar virkjanir fara í framkvæmd gætu skapast um 4.000-5.000 bein störf hér á landi“. Íslandsbanki áætlar gróflega að fjárfestingaþörfin til að hrinda þessum verkefnum í gagnið sé yfir 300 milljarðar króna. Til viðbótar þyrfti Landsnet að fjárfesta fyrir um 75 milljarða króna fram til ársins 2020 vegna nýrra virkjana og þróunar á flutningakerfi fyrir raforku. „Fari framkvæmdir af stað munu þær hafa gríðarleg áhrif á íslenskt efnahagslíf.“ Íslandsbanki telur vel mögulegt að fjármagna verkefnin, til dæmis með verkefnafjármögnun sem felur í sér stofnun félags í kringum ákveðið verkefni. Í skýrslunni segir að helstu hindranir sem orkufyrirtækin standi frammi fyrir í dag séu óvissa á alþjóðlegum markaði sem dregur úr eftirspurn eftir íslenskri orku, mikil skuldsetning orkufyrirtækjanna og breyttar áherslur í rekstri sem valda því að framkvæmdir eru settar í bið og óvissa skapast um fjármögnun þeirra. Þá sé það vandamál að rammaáætlun liggi enn ekki fyrir og ljóst sé að pólitísk áhætta vegna breytinga á reglum eftir að „leikur er hafinn“ hafi fælandi áhrif á erlenda fjárfesta.thordur@frettabladid.is
Mest lesið Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Innlent Íhugar að bjóða Selenskí eftir allt saman Erlent Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Erlent Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Innlent Sjaldan fleiri mótmælt ríkisstjórninni Erlent Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Erlent Fjórir karlmenn stálu Labubu í tugatali Erlent Borgarbúar fá annan góðviðrisdag Veður Níu gistu fangageymslur í nótt Innlent Bláa lónið varar ferðamenn við óprúttnum leigubílstjórum Innlent Fleiri fréttir Viðvaningsháttur Trump-liða, próflausir leigubílstjórar og vel heppnuð ganga Bláa lónið varar ferðamenn við óprúttnum leigubílstjórum Deilt um ESB og Sólveig Anna ræðir útlendingafrumvarp Níu gistu fangageymslur í nótt Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Pallaball fram á rauðanótt: „Farðu og finndu fólkið þitt!“ Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Vond staða Úkraínu, furðukenning um geimverur og Gleðigangan Taka þurfi ráðgjöf Hafró til endurskoðunar Alelda bíll á Emstruleið Vond niðurstaða Úkraínu, ásakanir á hendur sáttasemjara og síðasta hlaupið Mikill meirihluti hefur áhyggjur af stríðsátökum Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Ekki stafi lengur tilvistarógn af Hamasliðum Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Féll fjóra metra í vinnuslysi í Kópavogi Ómeðvitaðir ferðamenn í Reynisfjöru, síbökuð hjón og tölvuspil fram á nótt Enginn árangur af „veiða og sleppa“ aðferðinni Flokkarnir dæla milljónum í áróður á Meta Hræðast að fleiri en einn fari í sjóinn Átökin „hvorki vegna né þrátt fyrir“ áfengissöluna Heitavatnslaust í Laugardal Lést við flúðasiglingar í Vestari-Jökulsá Langflestir telja sig búa á góðum stað fyrir samkynhneigða Áttu ekki von á neinu veseni og viðbúnaður eftir því Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Maður féll í Vestari-Jökulsá Fangar í einangrun vegna sama máls noti ekki sama útisvæði Sjá meira