Flæði milli svæða Ragnheiður Þorláksdóttir skrifar 13. september 2012 06:00 Fólk á röltinu og reiðmenn á hjólhestum eiga greiða leið á milli Ingólfstorgs og Fógetagarðs um sund milli rauða hússins í Vallarstræti 4, Hótels Víkur sem einu sinni var, og gula hússins í Aðalstræti 7, þar sem var Brynjólfsbúð (vanalega talað um að versla hjá Brynka B.). Þessari leið skal lokað, fari fram sem horfir. Fyrir samkeppni sem bar heitið Ingólfstorg – Kvosin, og mikið hefur verið til umræðu að undanförnu, var gefin út keppnislýsing. Aðalatriðið var að koma fyrir stóru hóteli á svæði sem er afar viðkvæmt vegna þess að þar eru lágar byggingar fyrir og allmikil umferð. Í keppnislýsingunni segir m.a. um Ingólfstorg og Fógetagarð, „Leggja skal áherslu á samspil torgs/torga, bygginga, nærumhverfis og umferðarflæðis.“ (7) Almennt segir: „Leggja skal áherslu á gott umferðarflæði allra þeirra sem ferðast um svæðið.“ (6) Enn er áhersla lögð á „að flæði gangandi, hjólandi og akandi umferðar sé gott“ (4). Segir m.a.: „að flæði akandi, hjólandi og gangandi umferðar verði ofið saman á fínlegan hátt og gangandi og hjólandi vegfarendum gert hátt undir höfði“ (4). Hér er alltaf verið að tala um sama svæðið og verður að skilja svo að átt sé við umferð inn á svæðið í heild og tengsl umferðar milli Ingólfstorgs og Fógetagarðs og óhætt er að bæta við Austurvelli. Tvennt í tillögunni sem hlaut fyrstu verðlaun vekur einkum athygli þess sem þetta ritar, og er þá miðað við tengsl almenningsrýma á svæðinu: Annars vegar að ofannefnt færi sem gafst til auðveldrar umferðar gangandi og hjólandi milli Ingólfstorgs og Fógetagarðs er ekki nýtt og hins vegar að gert er erfitt fyrir um för þeirra sem hjóla og ganga milli Austurvallar og Fógetagarðs. Deiliskipulagið sem gildir fyrir svæðið er svonefnt Kvosarskipulag, nefnt Kvosin "86. Þar er skýrlega kveðið á um gönguleið á milli Ingólfstorgs og Fógetagarðs, um sundið sem er á milli Aðalstrætis 7 (Brynjólfsbúðar) og Vallarstrætis 4 (Hótels Víkur). Þarna á borgin 88 m² skika. Höfundar vinningstillögunnar gera ráð fyrir að þar komi nýtt og alltof hátt hús og gönguleið verði lokað. Verður þá að gera breytingu á samþykktu deiliskipulagi og afhenda hótelbyggjanda lóðina. Hitt atriðið er ný hótelbygging sem skal koma í Kirkjustræti þar sem er opið svæði á milli Austurvallar og Fógetagarðs. Á þessu svæði, sem er nýtt núna sem bílastæði, væri kjörið að hafa öruggan stíg fyrir gangandi og hjólandi. En þegar húsið hefur risið skal þeim sem ganga og hjóla beint út í þröngt Kirkjustræti þar sem virðist eiga að vera aðalaðkoma að hinu nýja stórhóteli. Ekki er sýnt hvernig umferð hjólandi, gangandi og akandi verði ofin þar saman á fínlegan hátt, enda sjálfsagt vonlaust ef þarna rís fyrirhuguð bygging. Skrýtið er að dómnefnd skuli hunsa svo gjörsamlega forsendur sem hún setti sjálf í keppnislýsingu. Það virðist ekki hafa verið nein alvara í ítrekuðum lýsingum á flæði á milli svæða, greiðum leiðum gangandi og hjólandi vegfarenda frá einu almenningsrými yfir á annað. Fólki er bent á að andmæla þessum vondu fyrirætlunum á www.ekkihotel.is. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar