Boltar í stað stóla í kennslustofunum 10. september 2012 02:00 Fá útrás á boltum Lea Björk og Sölvi Snær, sem voru að hefja nám í 1. bekk í Lágafellsskóla í Mosfellsbæ, sýna ljósmyndara Fréttablaðsins boltana sem nemendum býðst að sitja á. Kennslukonan þeirra heitir Imke Schirmacher. fréttablaðið/gva
Í Lágafellsskóla í Mosfellsbæ eru ekki bara boltar í íþróttahúsnæði skólans heldur líka í sumum kennslustofum. Þegar nemendur þurfa að losna við óróa úr líkamanum í kennslustund geta þeir setið á sérstökum bolta en samtímis verið á hreyfingu. "Umframorkan fer öll í að halda sér á boltanum. Börnin verða upptekin við það en eru ekki á ferð um stofuna. Þetta er ágætt fyrir þau sem þurfa að fá útrás. Um leið einbeita þau sér betur að náminu," segir Gunnhildur Harðardóttir, deildarstjóri í Lágafellsskóla. Hugmyndina að boltunum fengu starfsmenn skólans við lestur fræðirita. "Fjallað hefur verið um góðan árangur af tilraunum með boltana í öðrum löndum og þá datt okkur í hug að ef þetta virkaði hjá öðrum þá gæti það líka reynst vel hjá okkur," segir Gunnhildur. Hún getur þess að upphaflega hafi nemendur sem sérstaklega hafi þurft á einbeitingu að halda verið látnir prófa að sitja á boltum. "Það voru keyptir nokkrir boltar fyrir skólann. Reynslan hefur verið góð og fleiri nemendur hafa prófað þetta en þeir sem þetta var fyrst hugsað fyrir. Krakkarnir finna sjálfir hvenær þeir þurfa á þessu að halda en þetta hentar ekki öllum börnum. Í Lágafellsskóla hafa jafnframt verið gerðar tilraunir með notkun heyrnarhlífa fyrir nemendur. "Við höfðum lesið um að þær hefðu komið að góðum notum fyrir þá sem þurfa sérstakt næði til að einbeita sér og nú á skólinn nokkur stykki. Þetta er úrræði sem boðið er við ákveðna vinnu og hefur til dæmis verið hentugt í námsverum. Þeir nemendur sem vilja geta fengið að nota heyrnarhlífar við ákveðnar aðstæður," greinir Gunnhildur frá. Boltarnir og heyrnarhlífarnar eru notuð í öllum árgöngum þar sem óskað er eftir þeim en ekki bara í fyrstu tveimur árgöngunum þar sem kennt er í opnu rými. ibs@frettabladid
Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fleiri fréttir „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Sjá meira