Erlendir sælkerar vilja íslenska lambið 7. september 2012 03:45 Íslenskir lambakjötsframleiðendur fá ítrekað fyrirspurnir frá erlendum sælkeramörkuðum vegna íslensks lambakjöts.Fréttablaðið/stefán „
Við erum að horfa á útflutning til dýrari markaða í Evrópu og Asíu. Svo á íslenska lambakjötið að sjálfsögðu heima í Kanada og við erum að skoða þann möguleika mikið,“ segir Helgi Einarsson, framkvæmdastjóri Íslenskra matvara og ritari Alheimssamtaka matreiðslumanna (WAX). Helgi segir samtökin farin að starfa með öllum helstu matreiðsluskólum í heiminum og ef íslenskir framleiðendur vilji nálgast erlenda markaði, sé tækifærið núna. Fyrirspurnir vegna íslensks lambakjöts berist reglulega, meðal annars frá Singapúr, Frakklandi, Sádi-Arabíu og Sviss. „Erlendir markaðir eru svo stórir og því þarf að einbeita sér að minni og dýrari sælkeramörkuðum,“ segir Helgi. Íslenskar matvörur ehf. er fyrsta fyrirtækið til að flytja inn erlent lambakjöt til landsins, en sending af nýsjálensku lambakjöti er komin til landsins, að því er fram kom í Bændablaðinu í gær. Helgi segir innflutninginn bæði vera til að bregðast við þeim kjötskorti sem orðið hefur hér undanfarin ár, en einnig til að skoða markaðinn. „Við ætlum að byrja með dýrari vöðva. Ég finn fyrir áhuga víða á markaðnum á innfluttu kjöti, en það verður að hafa í huga að lambakjötið okkar er þjóðarstoltið, svo það er svolítið öðruvísi farið með það,“ segir hann. „En þjóðernisvitundin gerir það að verkum að þegar erlent kjöt er á markaðnum ýtir það undir bæði gæði og verð á innlendu hráefni og það er jákvætt.“ Magnús Freyr Jónsson, framkvæmdastjóri Sláturhúss KVH á Hvammstanga, tekur undir orð Helga og segir fyrirspurnir tíðar um betra íslenskt lambakjöt erlendis frá. Mest sé þó verið að flytja út aukaafurðir sem ekki er hægt að koma í verð hérlendis. „Það koma fyrirspurnir og hafa gert lengi, það vantar alltaf alls staðar sömu bitana,“ segir hann. „Við erum ítrekað beðnir um þá. En staðan á evrópskum mörkuðum er slæm, svo útflutningur er erfiður.“ Sláturhús KVH hefur flutt gæðakjöt til sælkerakeðjunnar Whole Foods í Bandaríkjunum og eftir helgi fer fyrsta sendingin til Kanada. „Þar er varan seld sem íslenskt gæðakjöt,“ segir Helgi. „Við gætum flutt miklu meira til Ameríku, það er endalaus eftirspurn. En okkar aðalmarkaður er samt sem áður sá íslenski. Hann er enn þá verðmætastur.“ sunna@frettabladid.is
Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fleiri fréttir „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Sjá meira