Gætu liðið mánuðir til viðbótar 6. september 2012 06:15 Hörður Svavarsson
Nokkrir mánuðir til viðbótar gætu liðið þar til íslenskt fólk, sem ættleiddi tvær stúlkur frá Kólumbíu, fær úrlausn sinna mála. Hjónin, Bjarnhildur Hrönn Níelsdóttir og Friðrik Kristinsson, hafa verið föst með stúlkurnar í Kólumbíu síðan í desember í fyrra. Hörður Svavarsson, formaður Íslenskrar ættleiðingar, segir að hjónin hafi gert allt rétt í málinu og séu í góðu samstarfi við ættleiðingaryfirvöld ytra. Hjónin hittu dómara í yfirrétti Medellin-borgar um miðjan ágúst, að því er fram kemur á upplýsingasíðu þeirra. „Þetta fer á annað dómsstig sem getur tekið einhverja mánuði. Þau eru bara þarna úti og það kostar þau peninga og þetta er náttúrulega alveg ömurlegt,“ segir Hörður. Félagið hefur reynt að styrkja þau, en er mjög fjársvelt. „Við höfum verið í samræðum við ráðuneytið um að það ætti að leggja þessu fólki til einhvern stuðning. Þar eru allir af vilja gerðir og hafa samúð með þeim í þessum aðstæðum.“ Hörður segir hins vegar að ekkert hafi verið afgreitt af hálfu ráðuneytisins. „Utanríkisþjónustan hefur nú sýnt það að hún getur lagt Íslendingum lið þegar þeir lenda í erfiðleikum erlendis, eru settir í fangelsi og svona, þá finnst okkur að það eigi líka að styðja þessa samborgara okkar.“ - þeb
Mest lesið Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Innlent „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Innlent „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Innlent Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Innlent Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Innlent Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Innlent „Á yfir höfði sér kærur vegna fjölda umferðarlagabrota“ Innlent Listamenn safna fyrir 10 ára dreng á Selfossi í dag Innlent Dómari krefst þess að Liam og föður hans verði sleppt úr haldi Erlent Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Innlent Fleiri fréttir Dyravörður tók gest kverkataki Geta stórbætt þjónustu fyrir þau sem greinast með krabbamein Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Sáttamiðlun úrræði sem væri alls ekki fyrir alla þolendur Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Dagur kvenfélagskonunnar er í dag 1. febrúar Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Mótmæla og biðla til utanríkisráðherra Nýir oddvitar og sáttameðferð í kynferðisbrotamálum Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Listamenn safna fyrir 10 ára dreng á Selfossi í dag „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Sprengisandur: Laxeldi, verðbólga og falsfréttir Grunaður um stórfellda líkamsárás „Á yfir höfði sér kærur vegna fjölda umferðarlagabrota“ Ölvuð kona grunuð um að valda umferðarslysi á rafhlaupahjóli Hlýnandi veður í dag og „meinlaus austanlægð“ í kortunum Hilmar Gunnarsson er oddviti í Mosfellsbæ Vilhjálmur Árnason leiðir Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ Baráttan hafi verið Viðreisn til sóma „Lúxusvandamál“ að velja og hafna á listann Stöðvuðu stolinn bíl með naglamottu eftir eftirför um alla borg Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ velja sér oddvita „Vinna er heilsuefling“ Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Blótað í Grindavík á nýjan leik Vaktin: Björg Magnúsdóttir leiðir lista Viðreisnar í borginni „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Vilja Hjallastefnugrunnskóla í Árborg Skjálftinn í Bárðarbungu 5,3 að stærð Sjá meira