Óvissa og lítil vinna sligar Þingeyringa 9. júlí 2012 05:00 Frá Þingeyri Það hefur verið hart í ári hjá mörgum á Þingeyri síðustu misserin en hráefnaskortur lamar starfsemi stærsta atvinnuveitandans yfir sumarmánuðina. mynd/róbert reynisson ?
Við vitum ekkert hvað er að gerast hérna,? segir Sólveig Jónsdóttir, fiskvinnslukona hjá Vísi á Þingeyri, sem hefur verið í vinnslustoppi frá 1. júní. Hún segir að auglýst hafi verið í vinnsluhúsinu að vinna hefjist að nýju þann 3. september næstkomandi en þó sé fólk óöruggt um að sú verði raunin. Um þrjátíu manns vinna hjá fyrirtækinu á Þingeyri. ?Það var eiginlega ekkert unnið í maí,? segir hún. ?Svo kom vinnslustoppið 1. júní og við erum á atvinnuleysisbótum þar til 27. júlí en þá erum við víst í sumarfríi.? Vísir er stærsti atvinnuveitandinn á Þingeyri og Sólveig segir að á mörgum heimilum vinni báðar fyrirvinnurnar hjá fyrirtækinu og því sé víða erfitt að færa björg í bú. ?Það er enga aðra vinnu að hafa hérna og síðan eru atvinnuveitendur og ríkisstjórnin með sínum aðgerðum búin að njörva okkur niður hérna. Við getum náttúrlega ekki selt húsin og farið; hver kaupir hús í þorpi þar sem enga vinnu er að fá? Ég er sérstaklega reið út í ríkisstjórnina sem er greinilega ekki að vinna fyrir vinnandi fólk í landinu.? Hún segir að tíð vinnslustopp séu farin að sliga starfsmenn. ?Þetta er búið að vera svona meira og minna undanfarin ár og svo byrjuðum við ekki fyrr en 23. janúar eftir jólafrí. Þar að auki er aðeins unnið frá átta til þrjú loks þegar unnið er svo maður hangir hérna á horriminni.? Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður Verkalýðsfélags Vestfjarða, segir að mikil bragarbót hafi verið gerð á réttindum fiskvinnslufólks árið 2008 en þá var því gert kleift að fara á atvinnuleysisskrá þegar vinnslustopp verða en áður hafi það verið sett á guð og gaddinn. Hann bendir á annan agnúa á hag Þingeyringa nú því margt skólafólk hefur nú enga vinnu til að hverfa að yfir sumarmánuðina og það hafi ekki rétt á atvinnuleysisbótum. Það geti því lent í því að verða þyngri baggi en ella á foreldrum sínum sem margir hverjir berjast í bökkum. En það þarf ekki að fara lengra en í næsta fjörð til að fá áminningu um að sumar byggðir geti unnið sig upp úr slíkum vanda. Á Flateyri, þar sem tugir manna örkuðu strætin í fyrra eftir að Eyraroddi lagði upp laupana, er nú fyrirtækið Arctic Oddi komið í fulla vinnslu með um fjörutíu manns í vinnu. Þó er langur vegur frá því að Flateyri hafi reist að fullu úr kútnum frá því að Kambur lokaði en þá misstu 120 manns vinnuna. jse@frettabladid.is
Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Sjá meira