Bæjarstjóri lætur fjarlægja slysagildru 5. júlí 2012 04:30 Húsið hefur grotnað niður síðan Bryndísarsjoppan var og hét en starfseminni var hætt árið 2008. Fréttablaðið Ernir
Húsið þar sem Bryndísarsjoppa var starfrækt til ársins 2008 stendur yfirgefið við Hringbraut 16 í Hafnarfirði. Mikill sóðaskapur er á lóðinni þar sem sjoppan stóð og húsið sjálft er í niðurníðslu og útkrotað. Íbúar við Hringbraut eru orðnir langþreyttir á óreiðunni á lóð sjoppunnar og hafa bent á að útidyrnar þar séu ekki læstar og mikið rusl og drasl sé inni sem beinlínis getur verið slysagildra fyrir börn og ungmenni sem stíga inn fyrir. Þá hafa krakkar gert það að leik sínum að brjóta tréplötur sem byrgja glugga hússins. Hafnarfjarðarbær keypti lóðina og húsið fyrir nokkrum árum. Húsið hefur nú verið selt og sótt hefur verið um leyfi fyrir flutningum á því. Nýr eigandi mun greiða allan kostnað við flutningana. „Það var kveðið á um að húsið skyldi farið 25. júní en það er verið að bíða eftir þinglýsingu afsals,“ segir Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, bæjarstjóri í Hafnarfirði. „Það er ekki hægt að flytja húsið fyrr en búið er að þinglýsa. Húsið er því á leiðinni í burtu, það er búið að samþykkja flutning á því og búið að sækja um leyfi lögreglu.“ Spurð hversu lengi íbúar í nágrenni gömlu sjoppunnar megi bíða eftir flutningunum segir hún það aðeins dagaspursmál. Guðrún segir að til standi að fara í gatnaframkvæmdir á horni Hringbrautar og Selvogsgötu þar sem umrætt hús stendur. „Það á að laga gatnamótin og auðvelda aðgengi að Flensborgarskólanum. Í gömlu skipulagi var gert ráð fyrir hringtorgi en ekki var pláss fyrir það því húsið er á þessum stað.“- bþh
Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Fleiri fréttir Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Sjá meira