Sér hnúfubakinn út um stofugluggann 30. júní 2012 03:15 Þarna má sjá einn hvalinn veifa sporði en það fer vel á því að bærinn Hvalsker er í baksýn mitt yfir sporðinum.mynd/Bríet arnardóttir „
Það er ódýrt að fara í hvalaskoðun á Patreksfirði skal ég segja þér,“ segir Bríet Arnardóttir sem býr á Patreksfirði. Þar geta vegfarendur hæglega séð hnúfubaka frá götum bæjarins. Bríet telur að um fimm skepnur svamli um fjörðinn. Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Vesturbyggðar, segir bæjarbúa og gesti vitanlega hæstánægða með þennan skemmtilega brag sem dýralífið setur á mannlífið þar vestra. „Já, já, það er bara ókeypis hvalaskoðun á Patreksfirði. Ég þarf ekki annað en að horfa út um stofugluggann hjá mér til þess að sjá stökkvandi hnúfubak, það er ekki amalegt,“ segir hún. Hún segir að þessu megi þakka að krökkt sé af smásíld í firðinum. Bílddælingar fara heldur ekki varhluta af stórhvelum því þegar blaðamaður var á ferð um Arnarfjörðinn sá hann tvo hnúfubaka úti á firði. Bríet segir að lengi hafi hnísur sést á sunnanverðum Vestfjörðum en það sé einungis nú hin síðustu ár sem þessir risavöxnu hvalir láti sjá sig. Hún segir að þeir hafi verið tíðir í firðinum síðastliðið sumar svo hver veit nema þeir verði árlegir gestir héðan af. Hún lét sér ekki nægja að horfa á risana frá fjöruborðinu en gerði sér nýlega ferð út á fjörð til að líta þá í návígi. „Þeir voru mjög gæfir, stundum vorum við ekki nema tvo metra frá þeim og þeir létu bara vel af því,“ segir hún. Hún segir enn fremur að stundum komi þeir mjög nálægt landi svo landkrabbarnir fá sín tækifæri líka til að líta risana. jse@frettabladid.is
Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Fleiri fréttir Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Sjá meira