Fréttaskýring: Refsiaðgerðir frekar ólíkleg framtíðarsýn 29. júní 2012 02:30 Makrílveiðarnar eru að skríða af stað og búið er að landa rúmlega sjö þúsund tonnum. Makríll veður í Breiðafirði, segja heimamenn. fréttablaðið/óskar fréttablaðið/óskar
Eru refsiaðgerðir af hendi Evrópusambandsins yfirvofandi vegna makrílveiða? Nú liggur fyrir samkomulag fulltrúa Evrópuþingsins og ráðherraráðs Evrópusambandsins, þar sem Danir fara með forsæti, um að reglugerð verði sett sem veitir heimild til aðgerða gegn ríkjum sem stunda ósjálfbærar veiðar. Reglugerðin er sett til höfuðs Íslendingum og Færeyingum vegna makrílveiða. Refsiaðgerðir gegn Íslandi hafa hins vegar ekki verið samþykktar, og myndu reynast bitlitlar ef til þeirra kæmi. Framhald málsins ræðst líklega á haustmánuðum. Samkomulagið gengur ekki eins langt og Evrópuþingið vildi ná fram en það vildi mun víðtækari heimildir til aðgerða, til dæmis að viðskiptaþvinganir gætu náð til allra fisktegunda. Í þessu samkomulagi er það bundið við þær tegundir sem viðkomandi ríki er sakað um að stunda ósjálfbærar veiðar á; í tilfelli Íslendinga á það við um makrílinn og meðafla í makrílveiðum eftir því sem næst verður komist. Umræða um refsiaðgerðir ESB og Norðmanna á hendur Íslandi og Færeyjum er ekki ný af nálinni. Þeir sem gerst þekkja á Íslandi hafa gjarnan svarað því til að allt slíkt tal sé innistæðulaust þar sem réttur okkar sem fiskveiðiþjóðar sé tryggður með alþjóðasamningum og í gegnum EES-samninginn. Sigurgeir Þorgeirsson, ráðuneytisstjóri, segir að stjórnvöld geri engar athugasemdir við það að ESB afli sér lagaheimilda til að beita aðgerðum gegn ríkjum sem stunda ósjálfbærar veiðar, eða veiða án samkomulags við aðrar þjóðir. „Við höfum slíkar heimildir í okkar löggjöf. Aðalatriðið, hvað okkur varðar, er að þær heimildir sem við teljum ESB-löglegar gagnvart EES-samningnum snúa aðeins að löndunarbanni á skip sem veiða úr umdeildum stofni.“ Heimildirnar sem núna hafa verið samþykktar ná til innflutningsbanns á makrílafurðum en Sigurgeir telur að slíkt samræmist ekki EES-samningunum. „Þetta eru almennar heimildir og þegar og ef að því kemur að þeim væri beitt gagnvart okkur, þá trúir maður því ekki fyrir fram að þeir beiti ekki heimildunum samkvæmt þeim samningum sem í gildi eru og uppfylla alþjóðlegar kröfur og samningsskuldbindingar við okkur,“ segir Sigurgeir. svavar@frettabladid.is
Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Fleiri fréttir Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Sjá meira