Tvöfalda má framleiðslu úr lífmassa 6. júní 2012 09:00 Úrgangur Horft er til úrgangsefna úr landbúnaði við framleiðslu á eldsneyti. Fréttablaðið/GVA
Eitt aðalumfjöllunarefni norræna samstarfsverkefnisins „CO2 Electrofuels“ er hvernig nýta má raforku á sem hagkvæmastan hátt til að tvöfalda magn eldsneytis sem framleiða má úr lífmassa. Þá snýr verkefnið að því að draga úr raforkunotkun þegar eldsneyti er framleitt úr kolsýru. Fram kemur í tilkynningu Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands að vegna aukinna gróðurhúsaáhrifa sé ljóst að taka þurfi í notkun aðrar tegundir eldsneytis en það sem framleitt sé úr olíu. Bent er á að notkun landbúnaðarafurða til eldsneytisframleiðslu hafi mætt vaxandi andstöðu vegna þess hve mikið ræktunarland er þá tekið undir annað en matvælaframleiðslu. „Einnig er horft til ýmissa úrgangsefna úr landbúnaði, en nú þegar er mikið af metani framleitt í Evrópu úr mykju og öðrum úrgangi.“ Þá kemur fram að þótt rafbílar kunni að vera vænlegur kostur í stað bensín- og olíudrifinna fólksbíla þá verði rafmagn tæpast notað til þungaflutninga, á flugvélar, millilandaskip eða fiskiskip. „Fyrir þessa notkun þarf orkuríkt eldsneyti, helst svipað því sem nú er notað.“ „CO2 Electrofuels“ samstarfsverkefnið verður kynnt í málstofu milli klukkan eitt og fimm í Náttúrufræðihúsi Háskóla Íslands, Öskju, þriðjudaginn 12. júní næstkomandi.- óká
Mest lesið Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Innlent Halldór Árni Sveinsson er látinn Innlent Bongóblíða um nánast allt land og rofar til í borginni um stund Veður Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Innlent Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Innlent „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Innlent Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Innlent Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Innlent Skotárás við Álaborg Erlent Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Innlent Fleiri fréttir Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Sveitarfélögin óþreyjufull og krefjast svara frá ráðherrum Fiskibátur varð aflvana við Stykkishólm Vegabréfsgjaldið hækkaði um fimm þúsund milli ára „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Hálftíma dauðastríð ekki talið brot á lögum um velferð dýra Halldór Árni Sveinsson er látinn Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Allt að fjörutíuföld mengun við skemmtiferðaskip Áfram Ísland með opinn fund á Skaganum Lýsa eftir Sæbjörgu Allir sem voru í ökutækjunum uppistandandi eftir áreksturinn Sjá meira