Innlent

Eftirlitsstofnun vill kröfur í lög fyrir marslok

Reiknað er með að auglýsingatekjur RÚV dragist saman um allt að 200 milljónir króna á ári verði frumvarpið að lögum. Páll Magnússon er útvarpsstjóri.
Reiknað er með að auglýsingatekjur RÚV dragist saman um allt að 200 milljónir króna á ári verði frumvarpið að lögum. Páll Magnússon er útvarpsstjóri. fréttablaðið/GVA
Íslensk stjórnvöld telja að nýtt frumvarp um starfsemi Ríkisútvarpsins ohf. (RÚV) muni innleiða ellefu svokallaðar „viðeigandi ráðstafanir“ varðandi fjárhags- og lagaumhverfi RÚV, verði það að lögum.

Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) fór fram á það í lok mars 2011 að gripið yrði til ráðstafana og hafa íslensk stjórnvöld frest til 31. mars næstkomandi til að ljúka innleiðingu þeirra. Gangi það ekki eftir mun ESA undirbúa málshöfðun.

Ákvörðun ESA var afsprengi áralangra samskipta stofnunarinnar og íslenskra stjórnvalda um tilhögun ríkisaðstoðar til Ríkisútvarpsins. Hún byggði á leiðbeinandi reglum ESA um tilhögun ríkisstyrkja til útvarpsþjónustu í almannaþágu sem fela í sér skýrari skil á milli almannaþjónustuútvarps og þess hluta starfsemi RÚV sem skilgreindur er sem samkeppnisrekstur.

Fréttablaðið greindi frá því í gær að samkvæmt frumvarpsdrögunum er lagt til að RÚV muni stofna sérstakt dótturfélag utan um alla samkeppnisstarfsemi fyrirtækisins, þar á meðal sölu á auglýsingum. Rekstur þess félags mun lúta eftirliti Samkeppniseftirlitsins (SE), en RÚV gerir það ekki.

Auk þess er lagt til að hlutfall auglýsinga í dagskrá RÚV fari ekki yfir 10 mínútur á klukkutíma, bannað verður að slíta í sundur dagskrárliði til að koma að auglýsingum, vöruinnsetning verður óheimil í innlendri dagskrárgerð og RÚV verður gert að birta gjaldskrá fyrir auglýsingar á vefnum þar sem einnig verða tilgreind sértilboð og önnur afsláttarkjör. Allar þessar breytingar eru í takt við kröfur ESA. - þsj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×