Fyrirmyndarbörn af bestu kynslóðinni hingað til Jóhanna Margrét skrifar 4. september 2012 21:42
Krakkar í Hagaskóla eru sammála um að þau eru lítið úti eftir klukkan tíu á kvöldin, borða ekki oft nammi og hafa aldrei orðið vitni að einelti. Það er í samræmi við niðurstöður nýlegrar könnunar sem gerð var meðal allra nemenda í efstu bekkjum grunnskóla. Könnunin Ungt Fólk 2012 var framkvæmd meðal ellefu þúsund nemenda í efstu bekkjum grunnskóla í febrúar síðastliðnum. Könnunin beinir athygli sinni að líðan og lífi unglinga, svo sem heilsu, námi og neyslu og hefur hún verið framkvæmd reglulega í tuttugu ár. Þegar litið er á vímuefnanotkun unglinga síðustu fimmtán ár má sjá að árið 1998 höfðu yfir fjörutíu prósent þátttakenda orðið ölvuð á síðustu þrjátíu dögum en einungis sjö prósent í dag. Sömuleiðis hefur ungmennum sem reykja daglega fækkað úr yfir tuttugu prósentum í þrjú prósent í ár. Þá eyða krakkar nú meiri tíma með foreldrum sínum utan skóla en áður og hefur aukið foreldraeftirlit leitt til þess að krakkarnir eru sjaldnar úti seint á kvöldin samanborið við síðustu ár. Þegar fréttakona spurði krakka í félagsmiðstöðinni Frostaskjóli hvort þau væru oft úti lengur en til tíu á kvöldin kváðu þau flest nei við, sögðu að lögin bönnuðu það eða nefndu að einstaka sinnum mættu þau vera lengur úti á sumrin. Annað sem kemur fram í könnuninni er að einelti hefur dregist saman og höfðu einungis níu prósent krakka í níunda og tíunda bekk tekið þátt í einelti eða ofbeldi á síðustu tólf mánuðum fyrir könnunina. Krakkarnir í Frostaskjóli sögðust ekki hafa tekið eftir einelti í skólanum og í það minnsta aldrei séð nokkurn verða fyrir einelti beinlínis. Þegar kemur að neyslu tiltekinnar fæðu hefur sælgætisneysla drengja aðeins dregist saman á meðan neysla á ávöxtum og grænmeti hefur tekið stökk. Krakkarnir í Frostaskjóli segjast ekki borða nammi á hverjum einasta degi. Í ritinu Ungt fólk 2012 kemur einnig fram að áfengisneysla hafi dregist mjög saman meðal ungmenna að undanförnu sem og reykingar. Krakkarnir í Frostaskjóli eru af þessum sökum sannfærð um að þau séu betri kynslóð en þær sem á undan fóru.
Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Fleiri fréttir Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Sjá meira