Innlent

Kona meiddist í útafakstri

Kona meiddist, en þó ekki alvarlega, þegar hún missti bíl sinn út af Kaldárselsvegi við Hafnarfjörð um miðnæturbil.

Hún var flutt með sjúkrabíl á slysadeild Landspítalans og bíllinn var fjarlægður með kranabíl.

Svo voru þrír ökumenn teknir úr umferð grunaðir um ölvunarakstur eða akstur undir áhrifum fíkniefna. Fíkniefni fundust á farþega í einum bílnum og sömuleiðis á mönnum, sem lögreglan hafði afskipti af við golfskálann að Setbergi í nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×