Viðskipti innlent

Samruni Sparisjóðs Ólafsfjarðar og Arion banka samþykktur

Fjármálaeftirlitið hefur samþykkt samruna Sparisjóðs Ólafsfjarðar við Arion banka á grundvelli laga um fjármálafyrirtæki.

Þetta kemur fram á vefsíðu eftirlitsins. Þar segir að Arion banki taki við öllum réttindum og skyldum Sparisjóðs Ólafsfjarðar og verða félögin sameinuð undir nafni Arion banka hf.

Auglýsing varðandi samrunann verður birt í Lögbirtingablaði eins og lög um fjármálafyrirtæki kveða á um.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×