Nýr Landspítali verði í ríkisframkvæmd 3. desember 2012 06:00 Leiguleiðin er nú ekki talin vænleg. mynd/lsh
Lagt er til að bygging nýs Landspítala við Hringbraut verði hefðbundin opinber ríkisframkvæmd og horfið verði frá svokallaðri leiguleið sem fyrirhugað var að fara, að því er fram kemur í minnisblaði sem Katrín Júlíusdóttir, fjármála- og efnahagsráðherra, og Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra lögðu fram á ríkisstjórnarfundi á föstudag. Ráðherrarnir leggja til að undirbúið verði frumvarp um breytingar á lögum sem geri opinberu hlutafélagi um byggingu nýs Landspítala (NLSH ohf.) kleift að halda utan um og annast byggingu nýs Landspítala sem fjármagnaður yrði sem opinber framkvæmd að mestu eða öllu leyti. Frumvarpið yrði lagt fram í janúar. Lagt er til að næstu mánuði muni fjármála- og efnahagsráðuneytið í samráði við NLSH ohf. og Landspítalann fara yfir framkvæmda- og fjárhagsáætlanir vegna verkefnisins. Athugað verði hvort finna megi svigrúm í langtímaáætlun um ríkisfjármál á næstu árum með það að markmiði að farið verði í verkefnið eða stærstu verkþættina sem opinbera framkvæmd ríkisins. Við þá skoðun verði lögð áhersla á að halda jöfnuði í ríkisfjármálum auk þess sem tekið verði tillit til hagræðingar og hagrænna áhrifa framkvæmdanna. Samkvæmt leiguleiðinni átti einkaaðili að byggja og reka húsnæðið og leigja það til ríkisins til langs tíma. Fram hafi komið veigamiklar efasemdir um hvort bygging spítalans uppfylli nauðsynleg frumskilyrði sem þurfa að vera fyrir hendi þegar leiguleiðin er farin, að því er segir í minnisblaðinu.- shá
Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Erlent Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Veður „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Erlent Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Erlent Fleiri fréttir Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Sjá meira