Innlent

Að greiða niður gervivísindi er eins að ráða stjörnuspeking til þess að kanna himinhvolfið

„Gervivísindi og kukl mega aldrei verða hluti af því sem ríkið og heilbrigðistryggingakerfið greiða niður því að það væri það sama og að ráða talnaspeking til að reikna út burðarþol brúarstöpla hjá Vegagerðinni eða stjörnuspeking til að kanna himinhvolfið vísindalega og greiða þeim eins og um byggingarverkfræðing eða stjarneðlisfræðing væri að ræða."

Svona segir í umsögn Svans Sigurbjörnsonar læknis um þingsályktunartillögu fjögurra þingmanna um um heildrænar meðferðir græðara sem lögð var fram á Alþingi fyrir helgi. Þar er meðal annars lagt til að það verði skoðað hvort ástæða sé til þess að niðurgreiða óhefðbundnar lækningar og veita þeim einhverskonar skattaivilnanir.

Svanur setur sig harkalega upp á móti hugmyndinni en í viðtali við Vísi fyrir helgi mótmælti hann tillögunni. Nú er hann búinn að senda umsögn til Alþingis þar sem þessu er mótmælt formlega.

Meðal þess sem kemur fram í umsögninni að Svanur telur enga þörf á að því að kanna hvort rétt sé að niðurgreiða slíkar meðferðir, „ekki frekar en að hvort að það eigi að kanna hvort að byggja eigi brýr úr bómull. Allt heilbrigðisstarfsfólk stundar heildræna nálgun að heilbrigðisvanda skjólstæðinga sinna - án kukls," skrifar Svanur.

Hann bendir síðan á að Læknafélag Íslands hafi ályktað gegn hjálækningum í október. Það var gert vegna viðtals í Fréttatímanum síðasta sumar, þar sem rætt var við konu sem taldi óhefðbundar lækningar hafa aðstoðað sig verulega í baráttunni við krabbamein.

Í lokin hvetur Svanur Alþingi til þess að endurskoða lög um græðara sem fyrst. „Væntanlega þarf að stofna nefnd um þá vinnu og þar er kominn vettvangur til að fjalla um framtíðarafskipti ríkisins af þessum málum," segir Svanur að lokum í umsögninni sem er hægt að lesa í heild sinni hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir

Vilja kanna niðurgreiðslur óhefðbundinna lækninga

Þingmennirnir Guðrún Erlingsdóttir, varaþingmaður Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi, Bjarkey Gunnarsdóttir, varaþingmaður Vg í Norðausturkjördæmi og Ólína Þorvarðardóttir hafa lagt fram þingsályktunartillögu sem miðar að því að greiða niður það sem heitir heildrænar meðferðir græðara.

Náði heilsu með hjálp græðara eftir krabbameinsmeðferð

Fjórir þingmenn og varaþingmenn Vinstri-grænna og Samfylkingarinnar vilja að velferðarráðherra skipi starfshóp sem kannar hvort að niðurgreiða skuli heildrænar meðferðir græðara til jafns við aðra heilbrigðisþjónustu eða undanskilja þær virðisaukaskatti. Þingmennirnir hafa lagt fram tillögu þessa efnis á Alþingi. Í hópnum eru varaþingmennirnir Guðrún Erlingsdóttir og Bjarkey Gunnarsdóttir og þingmennirnir Ólína Þorvarðardóttir og Álfheiður Ingadóttir sem er fyrrverandi heilbrigðisráðherra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×