Fannfergið tekur í budduna 3. desember 2012 06:00 Bæjarstjóri segir öflugt menningarlíf lykilatriði þegar vetur er í algleymi. fréttablaðið/Jónas Unnarsson
Fannfergi er víða norðanlands og þá ekki síst í Fjallabyggð; á Siglufirði og Ólafsfirði þarf að leita nokkuð langt aftur til að finna jafnmikinn snjó. Sigurður Valur Ásbjarnarson, bæjarstjóri í Fjallabyggð, segir að haustið hafi verið um margt sérstakt. Skemmst sé að minnast jarðskjálftahrinu norðanlands sem var leyst af með hörkuvetri. Hins vegar gangi daglegt líf sinn vanagang. „En þetta tekur í budduna að ryðja öllum þessum snjó. Það er nöturlegt að eyða peningum í að moka til vatni í föstu formi,“ segir Sigurður. Sigurður segir að Fjallabyggð hafi ætlað um tólf milljónir til snjómoksturs á þessu ári en þegar séu farnar fimmtán milljónir. Þetta sé högg sem sveitarfélag leysi ekki öðruvísi en að skera niður fé til annarra verkefna. Sigurður segir að fallegt veður hafi verið undanfarið. „En auðvitað hefur þetta áhrif á daglegt líf fólks, sérstaklega þegar menn eru lokaðir inni þrjár helgar í röð eins og var þegar þessu var að kyngja niður.“ Einn af kostunum við snjóinn segir Sigurður vera að byggt ból sé sjaldan fallegra en þegar jólaljósin spila á myrkrið við þessar aðstæður. Eins sé mikið menningarstarf á þessum tíma árs, bæði á Siglufirði og Ólafsfirði, sem leiðir hugann frá amstri dagsins. - shá
Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Erlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Veður Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Fleiri fréttir Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Sjá meira