Minna eytt en áætlað var og tekjur hærri 3. desember 2012 06:00 Útgjöld mennta- og menningarmálaráðuneytisins fyrstu tíu mánuði ársins eru þremur milljörðum króna undir áætlunum. fréttablaðið/valli
Ríkissjóður eyddi 35 milljörðum króna meira en hann aflaði á fyrstu tíu mánuðum ársins. Það er þó umtalsvert betri staða en reiknað hafði verið með, eða sem nemur 19,1 milljarði króna. Þetta kemur fram í mánaðarhlutauppgjöri A-hluta ríkissjóðs í október. Betri staða skýrist að mestu leyti af því að innheimtar tekjur ríkissjóðs voru 5,1 milljarði króna umfram áætlun. Skattar og tryggingagjöld í heild námu 378,3 milljörðum, eða 14,7 milljörðum umfram áætlun. Munar þar mestu um skatta á tekjur og hagnað sem voru 13,9 milljörðum hærri en reiknað hafði verið með. Innheimtar tekjur ríkissjóðs voru alls 411,5 milljarðar króna á tímabilinu. Gjöldin voru hins vegar 446,5 milljarðar króna, en það er sex milljörðum króna lægri upphæð en reiknað hafði verið með. Gjöld einstakra ráðuneyta voru í flestum tilvikum undir áætlunum. Handbært fé frá rekstri A-hluta ríkissjóðs var neikvætt um 37 milljarða króna til októberloka 2012. Það er 19,1 milljarði krónum betri útkoma en áætlun gerði ráð fyrir. Á sama tímabili árið 2011 var handbært fé frá rekstri hins vegar neikvætt um 59,9 milljarða króna. kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Fleiri fréttir „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Sjá meira