Feikilegt magn af efnum í amfetamínverksmiðjunni 15. september 2012 08:00 Lögreglan girti heimili mannsins af með borða og setti upp tjald til að geta athafnað sig við bílskúrinn. Fréttablaðið/anton
Gríðarmikið magn af efnum og efnablöndum – einkum í vökvaformi – fannst í bílskúr við Efstasund í Langholtshverfi í Reykjavík í fyrradag, þegar lögregla réðst þar til inngöngu á sjötta tímanum. Einn maður var handtekinn vegna málsins og veitti enga mótspyrnu. Sá er 46 ára kælitæknir sem bjó þar með konu sinni og tveggja ára barni. Fjórtán ára sonur konunnar dvaldi þar einnig reglulega. Maðurinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald til 21. september vegna málsins í gær. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins leikur ekki minnsti vafi á því að aðstaðan í bílskúrnum var ætluð til að framleiða hörð fíkniefni, líklega amfetamín. Innandyra fundust tól og tæki til slíkrar iðju, auk feikilegs magns af efnum og efnablöndum til framleiðslunnar, eins og heimildarmaður Fréttablaðsins orðaði það. Ekki er vitað hversu lengi aðstaðan hefur verið brúkuð en þó eru vísbendingar um að framleiðslan hafi staðið um nokkra hríð. Magnið af efnum var slíkt – og þau geymd í svo mörgum ílátum – að búist er við að það muni taka vísindamenn Háskóla Íslands langan tíma að greina um hvaða efni er að ræða. Í gærmorgun voru fulltrúar sérsveitarinnar sendir að iðnaðarhúsnæði í Trönuhrauni í Hafnarfirði í tengslum við málið. Í húsinu er 55 fermetra geymsla í eigu hins handtekna, auk þess sem fyrirtæki í hans eigu er skráð þar til húsa. Lögreglumenn voru að störfum þar þangað til um miðjan dag og báru út með sér eitt og annað sem ekki er vitað hvort og þá hvernig tengist fíkniefnaverksmiðjunni. Nágrönnum mannsins sem Fréttablaðið ræddi við er mjög brugðið vegna málsins, þótt þá hafi suma rennt í grun að ekki væri allt með felldu hjá hinum handtekna. Fleiri höfðu ekki verið handteknir í gær en samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni er málið mjög umfangsmikið. stigur@frettabladid.is
Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fleiri fréttir „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Tvö á einu rafmagnshlaupahjóli og flutt á bráðamóttöku „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Sjá meira