Starfshópur um staðgöngu skipaður 12. september 2012 08:00 Kristrún Heimisdóttir
Kristrún Heimisdóttir, lektor í lögfræði, er formaður starfshóps sem skipaður hefur verið til að gera lagafrumvarp sem heimilar staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni. Hrefna Friðriksdóttir, lektor í lögfræði, og Sigurður Kristinsson, siðfræðingur og forseti hug- og félagsvísindasviðs Háskólans á Akureyri, sitja einnig í hópnum. Þá hefur verið ákveðið að Karen Busby, lagaprófessor við Manitoba-háskóla, verði starfshópnum til ráðgjafar. Alþingi ályktaði í janúar síðastliðnum að fela velferðarráðherra að undirbúa frumvarp til laga sem heimili staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni. Unnið hefur verið að því að skipa starfshóp síðustu mánuði, en eins og Fréttablaðið greindi frá í sumar hefur það reynst erfitt. Starfshópurinn á að skila ráðherra frumvarpstexta og greinargerð „sem byggir á bestu þekkingu og rannsóknum um málefnið“ að því er fram kemur í skipunarbréfi. Þá á að gera grein fyrir meginspurningum á sviði lögfræði, siðfræði, læknisfræði og fleiri fræði- og vísindagreina þar sem fjallað hefur verið um staðgöngumæðrun auk þess sem skoða á löggjöf í öðrum ríkjum. Þá á að leggja áherslu á að hagur og réttindi barns, sjálfræði og velferð staðgöngumóður og fjölskyldu hennar og farsæl aðkoma verðandi foreldra verði tryggð. Í greinargerð með frumvarpinu á einnig að koma fram hvernig staðgöngumæðrun verði færð inn í íslenskt réttarkerfi. Þá verði að leitast við að uppfylla kröfur þingsins um skýrleika og traustan lagaramma, ströng skilyrði og skýrar verklagsreglur um framkvæmd og eftirlit með staðgöngumæðrun. - þeb
Mest lesið Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Erlent Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari Innlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent McConnell birtir mynd af sér á spítala Erlent Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Innlent „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innlent Fleiri fréttir „Það varð uppi fótur og fit“ Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Olíuverð, trjáþjófnaður og áhrifagjörn ungmenni Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Sjá meira