Evrópa tekur lambið af matseðli í kreppu 12. september 2012 07:00 Bandaríkjamenn hafa flutt inn íslenskt lambakjöt undanfarin ár og er það selt þar sem íslensk vara í mörkuðum Whole Foods.
Útflutningur á lambakjöti til ríkja innan Evrópusambandsins (ESB) minnkaði úr 640 tonnum fyrstu sex mánuði síðasta árs í 250 tonn á sama tímabili í ár. Ástæðan er samdráttur í efnahagskerfi ríkjanna. Á sama tíma jókst útflutningur lítillega til landa utan ESB, eins og Noregs og Færeyja. Sigurður Eyþórsson, framkvæmdastjóri Landssamtaka sauðfjárbænda, segir evrópska markaði hafa verið sérstaklega erfiða undanfarin misseri, en þó náist yfirleitt að koma afurðunum í verð þó þær séu ekki fluttar úr landi. „Það hefur verið allt í lagi. Auðvitað leita menn alltaf leiða til þess og heimamarkaðurinn er enn þá sterkastur,“ segir hann. „En það er ansi mikill munur á því hvað er flutt til ESB í ár og eins og þetta var í fyrra og það er klárlega kreppan í Evrópu sem er að hafa þar áhrif.“ Árið 2010 var metár í útflutningi á lambakjöti hér á landi, en um leið og efnahagskreppan fór að láta sjá sig í Evrópu, drógu menn saman seglin. „Það er annað neyslumynstur þar,“ segir Sigurður. „Lambakjötið er að keppa við annað kjöt hér, en í Evrópu eru menn fljótari að skera það út af matseðlinum þegar harðnar í ári. Og þetta á við um fleiri afurðir en lambakjöt.“ Íslenskir sauðfjárbændur stofnuðu regnhlífarsamtök fyrir markaðssetningu á betra lambakjöti fyrir smærri og dýrari heimsmarkaði í fyrra. Samtökin heita Iceland Lamb og halda utan um markaðssetningu sjö íslenskra lambakjötsframleiðenda. Sigurður segir að með slíkri markaðssetningu sé verið að hafa áhrif á markaði sem gefi betra verð og fylgi kjötinu allt til enda, en uppruni íslensks lambakjöts týnist víðast hvar í söluferli erlendis og er kjötið því einungis selt sem innflutt, nema á dýrari mörkuðum. „Neytandinn verður meðvitaður um að varan komi héðan og myndar tengsl við hana og framleiðslulandið,“ segir Sigurður. Fréttablaðið greindi frá því í síðustu viku að mikil eftirspurn væri á mörkuðum í Asíu og Ameríku eftir betra lambakjöti og verið væri að horfa til landa eins og Sádi-Arabíu, Singapúr og Kanada til útflutnings, en Bandaríkjamarkaður og smærri markaðir í Rússlandi hafa flutt inn íslensk lambakjöt í nokkur ár. sunna@frettabladid.is
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Nei-hliðin vann á ástríðunni Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Innlent Fleiri fréttir Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Sjá meira