Annað upplag af Fimmtíu gráum skuggum prentað BBI skrifar 12. september 2012 13:55
Landsmenn virðast afar ginnkeyptir fyrir skáldsögum með erótísku ívafi um þessar mundir. Fimmtíu gráir skuggar, íslenska þýðingin á bókinni sem hefur tröllriðið Bandaríkjunum að undanföru, trónir efst á bóksölulista eftir aðeins eina viku í sölu. Forlagið hefur þegar pantað endurprentun. Sölulisti yfir alla bóksölu í landinu birtist í gær. Listinn tekur til tveggja vikna, 26. ágúst - 8. september. Þar er bókin Fimmtíu gráir skuggar í efsta sæti, en bókin kom út í íslenskri þýðingu á þriðjudaginn síðasta, 4. september. Hún var því aðeins í sölu 5 daga af fyrrgreindu tímabili. Því blasir við að hún hefur hreinlega runnið út.Bókin Fifty Shades of Grey í íslenskri þýðingu.Erla Björg Gunnarsdóttir, kynningarstýra hjá Forlaginu, segir að salan hafi verið með eindæmum og fyrsta upplag sem telur 5000 bækur sé langt komið. „Bókin er að verða uppseld á lager svo að við erum búin að panta endurprentun," segir hún. Næsta upplag verður 7.500 bækur og verður tilbúið eftir um 10 daga. Fimmtíu gráir skuggar er ekki eina erótíska skáldsagan sem kemst ofarlega á listan. Fantasíur, samsafn kynlífsdraumóra kvenna, sem ritstýrt er af Hildi Sverrisdóttur, er í þriðja sæti listans núna, en bókin hefur verið í sölu í tæpan mánuð. Fantasíurnar eru þegar komnar í 20. sætið yfir mest seldu bækur alls ársins sem verður að teljast umtalsverður árangur. Umræddar sölutölur benda eindregið til þess að Íslendingar viti fátt lesefni skemmtilegra en það sem lýtur að erótík og kynlífi.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Nei-hliðin vann á ástríðunni Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Innlent Fleiri fréttir Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Sjá meira