Sjötíu björgunarsveitarmenn frá höfuðborgarsvæðinu á leið norður 12. september 2012 19:12 Í kvöld heldur hátt í 70 manna hópur björgunarsveitarmanna frá höfuðborgarsvæðinu norður í land til aðstoða bændur og björgunarsveitarmenn sem leita af kindum uppi á fjöllum. mynd/magnús viðar
Í kvöld heldur hátt í 70 manna hópur björgunarsveitarmanna frá höfuðborgarsvæðinu norður í land til aðstoða bændur og björgunarsveitarmenn sem leita af kindum uppi á fjöllum. Í fréttatilkynningu frá Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra segir að unnið hafi verið í Samhæfingarstöðinni í Skógarhlíð í dag eftir að lýst var yfir neyðarstigi á svæðinu í gær. „Unnið er með heimamönnum á Norðausturlandi við að útvega mannskap og tæki við leit og björgun á fé, sem enn var á fjöllum er óveðrið skall á. Rafmagnsleysi var umfangsmikið þar sem margar raflínur slitnuðu vegna ísingar. Unnið hefur verið að viðgerð á þeim og eru flestir komnir með rafmagn, en notast er við varaafl á Kópaskeri, Raufarhöfn, Þórshöfn og í Kelduhverfi þar sem ekki hefur tekist að lagfæra raflínur sem þjóna þessu svæði," segir í tilkynningunni. Þá hefur Rauði krossinn opnað fjöldahjálparstöð í Reykjahlíðarskóla og mun aðstoða eftir þörfum. Mötuneyti, stuðningur og ráðgjöf er þar í boði. Ekki hafa komið upp vandamál vegna ferðamanna á svæðinu í dag. Veðurstofan spáir suðaustan 8 - 13 m/s og dálítilli vætu í kvöld og nótt en heldur hvassari með norðaustan og norðan 10 - 18 m/s og víða rigningu á morgun.
Mest lesið Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Erlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent McConnell birtir mynd af sér á spítala Erlent Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari Innlent Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Innlent Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Innlent Fleiri fréttir „Það varð uppi fótur og fit“ Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Olíuverð, trjáþjófnaður og áhrifagjörn ungmenni Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Sjá meira