Fjórir í stærðfræði með ágætiseinkunn 3. júlí 2012 04:30 Trausti Sæmundsson, Eiríkur Þór Ágústsson og Hjörtur Björnsson standa við planið þar sem Féló var áður. Á myndina vantar Ögmund Eiríksson en hann fékk einnig ágætiseinkunn. Fréttablaðið/anton
Fjórir stærðfræðinemar brautskráðust úr grunnnámi með yfir níu í meðaleinkunn frá Háskóla Íslands fyrir viku. Stærðfræði er nytsamleg, segir einn þessara nema, hún er notuð í hvert skipti sem lesa þarf úr talnagögnum. Fjórir af þeim tíu stærðfræðinemum, sem brautskráðust úr grunnámi frá Háskóla Íslands í síðustu viku, hlutu ágætiseinkunn. 1.238 nemendur brautskráðust úr grunnámi við skólann og þar af voru 26 með ágætiseinkunn. Það er hæsta einkunn sem hægt er að fá við skólann en hana fá þeir sem eru með níu eða hærra í meðaleinkunn. Trausti Sæmundsson er einn þeirra fjögurra nemenda sem brautskráðust með ágætiseinkunn úr stærðfræði. Hann segir uppskriftina að árangrinum einfalda. „Maður þarf að hafa áhuga á stærðfræði og vera þrjóskur,“ segir Trausti. Hann segir námið hafa verið ákaflega krefjandi. „Ég þurfti að skila mörgum heimaverkefnum í hverri viku og í hverju fagi og ég var í fjórum til fimm fögum á hverri önn. Það voru ein skil nánast daglega og daginn áður en ég átti að skila var ég langt fram á nótt að reyna að klára verkefnin því þau voru virkilega erfið.“ Hjörtur Björnsson var samnemandi Trausta og brautskráðist einnig með ágætiseinkunn. Hann segir stærðfræðina nytsamlega. „Ég held að tölfræði sé með praktískasta námi sem til er. Hún er notuð í hvert einasta skipti sem einhver þarf að lesa út úr gögnum sem notuð eru til rannsókna. Svo er þetta líka að stærstum hluta hjálparfag við aðrar greinar. Eðlis- og efnafræðingar þurfa til dæmis stöðugt að vera að reikna.“ Strákarnir eru sammála um að samvinnan hafi gert gæfumuninn til að koma þeim í gegnum námið. „Ég, Hjörtur, Ögmundur og fleiri lærðum bara sleitulaust saman í þrjú ár. Alltaf eftir skóla hittumst við í Féló.“ Trausti útskýrir að Féló hafi verið lítið hús fyrir utan skólann, en þar hafi nemendur haft aðstöðu til hittast og læra saman. „Féló var okkar griðastaður þar sem við lærðum, drukkum kaffi, skrifuðum upp á töflu og hugsuðum dæmi. Þar gátum við komist í gegnum þetta nám.“ Bæði Trausti og Hjörtur vinna í sumar hjá háskólanum. Hjörtur er að vinna við stærðfræðivef ætlaðan menntaskólanemum sem mun innihalda bæði spurningar og fyrirlestra. Trausti vinnur hins vegar að forriti sem púslar saman bútum úr DNA-streng. Þeir stefna báðir á frekara nám. katrin@frettabladid.is
Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Fleiri fréttir Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Sjá meira