Innlent

Andrea vill snúa sér að réttlætisbaráttu

BBI skrifar
Andrea Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, býst við því að hún muni snúa sér aftur að einhvers konar réttlætisbaráttu fyrst hún hlaut ekki kjör sem forseti Íslands. Áður en hún fór í forsetaframboð gegndi hún hlutverki formanns Hagsmunasamtaka Heimilanna.

Andrea hefur enn ekki gert upp við sig hvort hún snýr aftur í raðir Hagsmunasamtaka Heimilanna eða hvort hún leitar eitthvert annað, t.d. á Alþingi.

„Ég er nú bara rétt að slaka á svona fyrstu dagana eftir þetta og hugsa mín næstu skref," segir Andrea sem ætlar að taka sér frí í sumar.

Á næstu árum vill Andrea gjarna sjá árangur með lýðræðið á Íslandi. „Þar held ég að þurfi að koma til samtakamáttur fólksins," segir hún.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×