Varað við meðferð elds - gróður eins og púðurgeymsla Kristján Már Unnarsson skrifar 15. júní 2012 21:30
Skógurinn er eins og púðurgeymsla eftir langvarandi þurrka, segir slökkviliðsstjóri Borgarbyggðar, sem segir eldnotkun úti í náttúrunni sérlega hættulega um þessar mundir. Almannavarnir prófa á morgun viðbragðskerfi fyrir Skorradal vegna skógarelda. Um sjöhundruð sumarbústaðir eru í Skorradal en almannavarnir héldu í gærkvöldi fund á Hvanneyri þar sem kynnt var viðbragðsáætlun fyrir íbúa og sumarhúsaeigendur. Bjarni Þorsteinsson, slökkviliðsstjóri í Borgarnesi, segir að ef menn gefi sér að þrír einstaklingar séu að meðaltali í hverju húsi, og eldur komi upp í Skorradal, blasi við almannavá. Landslagið þar sé bratt og eldur sæki mjög hratt upp bratta. Flóttaleiðir úr dalnum séu ekki góðar og löngu hafi verið tímabært að gera neyðaráætlun fyrir svæðið. Klukkan eitt á morgun verður boðunarkerfi prófað með því að tilkynning er send í alla GSM síma á svæðinu og þar nærri. Slökkviliðsstjórinn segir þessa langvarandi þurrka að undanförnu skapa hættu og segir skemmst að minnast elds sem blossað hafi upp sumarhúsahverfi í Galtarholtstungu fyrir hálfum mánuði. „Þetta var bara eins og að kveikja í bensínpala," segir Bjarni. Hann rifjar upp Mýraeldana fyrir sex árum og segir sinuna afar hættulegan eldmat. Þá sé mosinn núna þannig að hann molni af þurrki. Hann hefði aldrei trúað því að sjá tveggja mannhæða eldvegg geisast áfram tvo og hálfan kílómetra á klukkutíma, eins og á Mýrum. „Það hefði ekki nokkurt mannlegt vald geta stoppað það." Slökkviliðsstjórinn óttast að margir geri sér ekki grein fyrir því hvað eldnotkun geti verið hættuleg við þessar aðstæður og nefnir sérstaklega einnota grill og varðelda, sem menn séu að kveikja inni í sumarhúsahverfum, við allskyns aðstæður, - sumir drukknir eða illa fyrir kallaðir. „Að vera með eld í Skorradal í þurrkatíð, þetta er svona svipað og að fara með kerti í gegnum púðurgeymslu."
Mest lesið Fjölskyldufaðir þungt haldinn á spítala eftir alvarlega árás á þorrablóti Innlent „Þarf maður að fara að finna einhverja nýja fjöru?“ Innlent „Skaðinn er ekki skeður þó að járnbrautarslysið vofi yfir“ Innlent Rektor Háskólans á Bifröst segir af sér Innlent Drífa Snædal snýr aftur Innlent Tók hálftíma að þróa fullkomna eftirlíkingu af rödd Höllu Innlent Ný Ölfusárbrú farin að taka á sig mynd Innlent Gabríel á bak við lás og slá fram á föstudag Innlent Flutti til Reykjavíkur í dag Innlent Þrír í haldi vegna stunguárásar: Gabríel Douane einn grunaðra Innlent Fleiri fréttir „Þarf maður að fara að finna einhverja nýja fjöru?“ „Skaðinn er ekki skeður þó að járnbrautarslysið vofi yfir“ Fjölskyldufaðir þungt haldinn á spítala eftir alvarlega árás á þorrablóti Tók hálftíma að þróa fullkomna eftirlíkingu af rödd Höllu Rektor Háskólans á Bifröst segir af sér Ný Ölfusárbrú farin að taka á sig mynd „Það er ekkert sem tekur við og enginn sem ber ábyrgð“ Drífa Snædal snýr aftur Goddur jarðsunginn Tifandi tímasprengja, oddviti í beinni og breytt Reynisfjara Handtekin fyrir að beita opinberan starfsmann ofbeldi „Þörfin er gríðarleg“ Gabríel á bak við lás og slá fram á föstudag Blíðan haft áhrif á gróður sem lætur þó ekki plata sig Reiknar með einu gosi í viðbót Flutti til Reykjavíkur í dag Málið mögulega fyrir dómstóla: „Ekkert eðlilegt við það að fá símtal frá stjórnendum“ Réttað yfir manni sem er grunaður um að nauðga barni og konu sinni Saka stjórnendur Bifrastar um að hafa beitt nemendur þrýstingi Saka stjórnendur um að þrýsta á nemendur að styðja rektor Biðla enn til almennings sjö árum eftir hvarf Jóns Þrastar Þorsteinn fær áheyrn Hæstaréttar Ari Edwald leiðir Miðflokkinn í borginni Stjórnarformaðurinn verður forstjóri Reykjalundar Íslenska ríkið ræður lobbýista í Washington Jarðskjálftahrinan við Eldey heldur áfram Þetta eru launin sem frambjóðendur geta vænst með kjöri í vor „Vísun máls til siðanefndar getur ekki talist aðför“ Fjórir handteknir í tengslum við líkamsárásir „Stuðlabergið er bara komið út í sjó“ Sjá meira