Langjökull gleypti tökustað Frosts 5. júní 2012 16:00 Ingvar Þórðarson hjá tjöldunum sem fundust aftur, mörgum mánuðum eftir að tökum lauk. „
Þegar við vorum að „skjóta" í janúar hurfu búðirnar undir lokin. Við urðum að skilja eftir fimm tjöld og þau voru fyrst núna að koma undan vetrinum," segir Ingvar Þórðarson, einn af framleiðendum spennutryllisins Frosts sem verður frumsýndur í haust. Ýmislegt gekk á við tökur á Frosti uppi á Langjökli í janúar. Meðal annars þurfti tökuliðið að skilja eftir fimm tjöld, sem hvert kostar 150 þúsund krónur, vegna veðurs. „Þegar við vorum búin og ætluðum að taka allt niður eftir tökur hurfu tjöldin. Jökullinn gleypti þau," segir Ingvar. Hann er mjög ánægður með að þau séu núna komin í leitirnar, ekki bara vegna verðmætanna heldur líka vegna þess að mikilvægt er að skilja við náttúruna eins og hún var áður en tökurnar hófust. „Þetta snýst um að bera virðingu fyrir náttúrunni. Það er númer eitt, tvö og þrjú." Hellir þar sem atriði í myndinni voru einnig tekin upp er aftur á móti horfinn og hefur ekki fundist aftur þrátt fyrir að sumarið sé komið. „Jökullinn gæti sýnt hann aftur eftir hundrað ár eða bara aldrei. Þessir jöklar eru magnað fyrirbæri. Það getur hvað sem er leynst á þeim." -fb
Mest lesið „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Bíó og sjónvarp Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar Bíó og sjónvarp Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Menning Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Fleiri fréttir Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Sjá meira