Innlent

Sektuðu fyrir nagladekkin

Lögreglan biður eigendur og umráðamenn ökutækja á negldum dekkjum að gera þar bragarbót á.
Lögreglan biður eigendur og umráðamenn ökutækja á negldum dekkjum að gera þar bragarbót á. Fréttablaðið/Pjetur
Ökumenn 30 bíla á höfuðborgarsvæðinu voru sektaðir um helgina fyrir að aka um á nagladekkjum. Notkun þeirra er óheimil á þessum árstíma.

„Þeim verður gert að greiða fimm þúsund krónur í sekt fyrir hvert nagladekk og því kemur þetta verulega við pyngjuna hjá áðurnefndum ökumönnum,“ segir í tilkynningu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Hafi öll dekk bílanna verið negld nemur sektarinnheimtan vegna þessa samtals 600 þúsund krónum. - óká




Fleiri fréttir

Sjá meira


×