Innlent

Merkingar geta verið villandi

Gísli Tryggvason
Gísli Tryggvason
„Ef það stendur íslenskar lopapeysur, merkt með íslensku fánamerki, þannig að það sé gefið í skyn að þetta sé alíslenskt, þá get ég nú tekið undir að þetta geti virkað villandi,“ segir Gísli Tryggvason talsmaður neytenda spurður út í vörumerkingar á lopapeysum.

„Ef þetta er bara merkt sem íslensk hönnun og framleitt úr íslenskri ull, get ég ekki fullyrt um að þetta sé eitthvað ólöglegt,“ segir Gísli.

„Ef upplýsingar eru gefnar eiga þær náttúrulega að vera réttar, fullnægjandi og þar af leiðandi ekki villandi.“ Hann segir almennt að neytendur geri meiri kröfur um að fá að vita hvar vörurnar séu framleiddar.

„Sumir vilja vita hvar varan er framleidd, til að vita við hvaða vinnuskilyrði og umhverfisskilyrði varan er framleidd,“ segir Gísli.

„Við höfum alltaf sagt að ef framleiðendur telja vöruna íslenska, þá er bara ósköp einfalt fyrir þá að segja að hvaða leyti hún er íslensk,“ segir Sigurður B. Halldórsson lögfræðingur hjá Samtökum iðnaðarins. Hann vildi þó ekki tjá sig um einstök tilfelli enda fá fyrirtæki sem tengjast málinu aðilar að Samtökum iðnaðarins.

Neytendastofa kannar allar ábendingar, en getur ekki gefið svör um málið að svo stöddu. - ktg




Fleiri fréttir

Sjá meira


×