Innlent

Fiskverð snarhækkar á innlendum mörkuðum

Fiskverð snarhækkaði á fiskmörkuðum í gær og var um það bil 20 prósentum hærra en að meðaltali í síðasta mánuði, samkvæmt heimasíðum fiskmarkaðanna.

Þannig seldist kílóið af óslægðum þorski á 377 krónur og verð á óslægðri ýsu losaði 500 krónur.

Að sögn kunnugra má rekja þetta til þess að óvenju lítið framboð var, eins og jafnan fyrsta dag eftir sjómannadag, þegar öll skip hafa verið í landi. Einnig kann það að hafa einhver áhrif að stóru skipin ligga enn við bryggju vegna mótmælaaðgerða LÍÚ.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×