Öryggisvörðurinn sér mikið eftir árásinni 5. júní 2012 18:39
Sláandi myndir náðust af því þegar öryggisvörður á Hlemmi gekk í skrokk á manni sem þar hafðist við. Starfsmanninum hefur verið vikið frá störfum og forstjóri Strætó segir koma til greina að endurskoða öryggismálin. Myndskeiðið birtist í gær á heimasíðu blaðsins The Reykjavík Grapewine en blaðamaður blaðsins var á staðnum þegar upp úr sauð. Hann tók atvikið upp á símann sinn. Vörðurinn beitti manninn þónokkru harðræði. Slær hann í höfuðið og sparkar í hann. Þá ýtir hann honum harkalega upp að rúðu við útganginn sem hrekkur úr. Reynir Jónsson forstjóri Strætó segir að málið sé litið alvarlegum augum og að strax og það komst upp hafi verið farið fram á við vinnuveitanda mannsins að honum yrði vikið frá störfum, að minnsta kosti á meðan á rannsókn standi. Öryggisgæslan á Hlemmi um kvöld og um helgar hefur síðustu misserin verið í höndum starfsmanna veitingasölunnar sem rekin er í húsinu. „Það er akkúrat það sem þessi maður var að gera en hann hafði verið að vinna hjá öryggisgæsluaðila sem hafði starfað þarna fyrir okkur áður. Hann er því búinn að vera þarna í um fjögur ár ef ég man þetta nú rétt. Hann var því ekkert að koma nýr inn í þetta og hefur fengið mjög góða umsögn um sín störf. En hvað gerist þarna veit ég ekki." Reynir segir að þetta sé í fyrsta sinn sem atvik af þessu tagi hafi komið upp á Hlemmi. Almennt séð hafi ástandið á staðnum batnað mjög mikið enda hafi verið gripið til ýmissa aðgerða eins og að loka almenningsklósettunum og fjarlægja bekki þar sem ógæfufólk hafi hafst við löngum stundum. Reynir segir mögulegt að fyrirkomulagið á öryggisgæslunni verði endurskoðað í ljósi þessa atviks. Fréttastofan ræddi í dag við öryggisvörðinn sem baðst undan viðtali. Hann sagðist hinsvegar sjá afar mikið eftir atvikinu en að það ætti sér aðdraganda sem hann vildi ekki ræða nánar.Frétt Vísis frá því í gærkvöldi.
Mest lesið Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Innlent Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Erlent Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent Fleiri fréttir Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Sjá meira