Borgarfulltrúi: Alls ekki við hæfi að þiggja boðsferðina Boði Logason skrifar 5. júní 2012 21:17 Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, segir að það sé alls ekki við hæfi að stjórnmálamenn þiggi boðsferðir. "
Einar Örn hefur eitthvað misskilið það hvernig fara eigi með siðareglur ef hann heldur að hann geti túlkað þær með þessum hætti," segir Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Einar Örn Benediktsson, borgarfulltrúi Besta flokksins, þáði boðsferð með WOW air í jómfrúarferð félagsins til Parísar á fimmtudag í síðustu viku. Einar Örn sagði við Vísi fyrr í kvöld að hann ætti sér annað líf fyrir utan borgarfulltrúastarfið og hann hefði farið á þeim forsendum að Skúli Mogensen, stjórnarformaður WOW air, sé gamall vinur hans. Þá sagðist hann einnig hafa borgað sjálfur fyrir sæti sitt en í henni voru fulltrúar fjölmiðla, ferðaskrifstofa og vinir stjórnenda WOW air. Í siðareglum borgarfulltrúa í Reykjavík segir: „Kjörnir fulltrúar þiggja ekki gjafir, fríðindi eða önnur hlunnindi frá viðskiptamönnum eða þeim, er leita eftir þjónustu Reykjavíkurborgar nema að um sé að ræða óverulegar gjafir." Júlíus Vífill segir í samtali við Vísi í kvöld að Einar Örn geti ekki skilið á milli persónunnar Einars Arnar og borgarfulltrúans Einars Arnar þegar kemur að því að þiggja boðsferðir frá einhverjum. „Það er alls ekki við hæfi fyrir stjórnmálamenn að þiggja gjafir með þessum hætti. Ég held að enginn annar en Einar Örn myndi láta sér detta í hug að túlkar þessar reglur eins og hann er að gera. Að hann geti skilið sjálfan sig frá þeim störfum sem hann hefur verið valinn til í kosningum. Þetta er ekki eins og ráða sig í einhverja vinnu, þú ert að gefa kost á þér til starfa í almannaþágu," segir hann. „Það verður að vera hafið yfir allan vafa hvernig þú stendur að þessum störfum þínum, að þau sé hægt að fara yfir og skoða á hverjum tíma og hvenær sem er. Það hafa allir rétt á að hafa skoðanir á okkar störfum. Ef menn vilja ekki að með þeim sé fylgst í því sem þeir eru að gera þá eiga menn bara að finna sér annað starf," segir Júlíus Vífill. Spurður hvort að hann viti um dæmi þess að borgarfulltrúar hafi farið í ferðir sem þessar segir Júlíus: „Mér er ekki kunnugt um að svo sé. Ég held að allir hljóti að sjá að það sé ekki við hæfi að þiggja slíkar ferðir. Það breytir engu í því sambandi þó að bjóðandinn sé gamall vinur, eins og Einar heldur fram," segir Júlíus Vífill.
Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Fleiri fréttir Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Sjá meira