Hvers vegna er mikilvægt að gera sitt besta? Bryndís Jónsdóttir og Oddný Sturludóttir skrifar 15. mars 2012 06:00 Í marsmánuði taka 10. bekkingar á landinu öllu þátt í PISA rannsókninni. PISA mælir kunnáttu 15 ára nemenda um allan heim í stærðfræði, lesskilningi og náttúrufræði. PISA er ekki próf sem nemendur undirbúa sérstaklega heldur mæling á hæfni og þekkingu ungmenna við lok skyldunáms. Það reynir á ályktunarhæfni, lesskilning og beitingu mismunandi aðferða. Niðurstöðurnar gefa okkur vísbendingar um hvar við stöndum vel og hvar síður og því betur sem nemendur leggja sig fram, því betri mynd af kunnáttu nemenda búum við yfir. Undanfarin misseri hefur Reykjavíkurborg beint sjónum sínum sérstaklega að PISA, bæði niðurstöðunum og hvernig þær geta vísað veginn til öflugrar skólaþróunar. Borgin hefur stutt við samstarf faghópa kennara á unglingastigi og kennara úr Háskóla Íslands og stóraukið fræðslu um PISA og árangursríka kennsluhætti. Mikil áhersla hefur verið lögð á að auka vitund kennara, foreldra og nemendanna sjálfra um mikilvægi rannsóknarinnar fyrir reykvískt skólastarf. Skólayfirvöld í Reykjavík hafa frá fyrstu tíð unnið að þeirri vitundarvakningu í samstarfi við Samfok, samtök foreldra grunnskólabarna í Reykjavík. Rannsóknir hafa sýnt að engin ein breyta hefur viðlíka jákvæðari margföldunaráhrif til góðs fyrir árangur og vellíðan barna í skóla eins og jákvæð og hvetjandi viðhorf foreldra til náms barna sinna. En ekki bara til náms, heldur einnig til félagslífs, óformlegs náms og sköpunargleði. Því hefur Reykjavíkurborg í samstarfi við grunnskóla, félagsmiðstöðvar og foreldra, blásið til hæfileikakeppni meðal 15 ára ungmenna, Písa Keik 2012. Þar gefst 10. bekkingum tækifæri til að láta ljós sitt skína í gegnum sköpun og listir. Við biðjum unga fólkið að íhuga með okkur svarið við spurningunni: Hvers vegna finnst þér mikilvægt að gera þitt besta? Við vitum að það stendur ekki á svörunum. Og við skulum leggja við hlustir. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Útlendingarnir sem við Íslendingar erum sjálf Karen María Jónsdóttir Skoðun Látum hina borga Ingólfur Sverrisson Skoðun Jájájá ... dæsti ráðherrann Kristín Helga Gunnarsdóttir Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Halldór 13.06.2026 Halldór Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson Skoðun Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá María Gunnarsdóttir Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson Skoðun Skoðun Skoðun Jájájá ... dæsti ráðherrann Kristín Helga Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Útlendingarnir sem við Íslendingar erum sjálf Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Látum hina borga Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Veit „óvinur númer eitt“ að hann er númer eitt? Jón Steinar Sæmundsson skrifar Skoðun Að loka augunum fyrir hinu augljósa skrifar Skoðun Færeyingar eru ekki í ESB en… Sigurður Steinar Ásgeirsson skrifar Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Dagur í lífi Íslendinga árið 2040 Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson skrifar Skoðun Sagan um afganginn sem hvarf Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason skrifar Skoðun Hver ertu þegar þú réttlætir að barn sé lokað inni? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi fremur en upphrópanir í útlendingamálum Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Já, tökum okkur Færeyinga til fyrirmyndar Hjörtur j. Guðmundsson skrifar Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Við þurfum ekki ESB – eða hvað? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Það er verið að efla framhaldsskóla og verkmenntun Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Seiðkarlar fyrri alda Steingrímur Gunnarsson skrifar Skoðun Hverjir borga brúsann? Franklín Ernir Kristjánsson skrifar Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um gangbrautirnar? Valerio Gargiulo skrifar Sjá meira
Í marsmánuði taka 10. bekkingar á landinu öllu þátt í PISA rannsókninni. PISA mælir kunnáttu 15 ára nemenda um allan heim í stærðfræði, lesskilningi og náttúrufræði. PISA er ekki próf sem nemendur undirbúa sérstaklega heldur mæling á hæfni og þekkingu ungmenna við lok skyldunáms. Það reynir á ályktunarhæfni, lesskilning og beitingu mismunandi aðferða. Niðurstöðurnar gefa okkur vísbendingar um hvar við stöndum vel og hvar síður og því betur sem nemendur leggja sig fram, því betri mynd af kunnáttu nemenda búum við yfir. Undanfarin misseri hefur Reykjavíkurborg beint sjónum sínum sérstaklega að PISA, bæði niðurstöðunum og hvernig þær geta vísað veginn til öflugrar skólaþróunar. Borgin hefur stutt við samstarf faghópa kennara á unglingastigi og kennara úr Háskóla Íslands og stóraukið fræðslu um PISA og árangursríka kennsluhætti. Mikil áhersla hefur verið lögð á að auka vitund kennara, foreldra og nemendanna sjálfra um mikilvægi rannsóknarinnar fyrir reykvískt skólastarf. Skólayfirvöld í Reykjavík hafa frá fyrstu tíð unnið að þeirri vitundarvakningu í samstarfi við Samfok, samtök foreldra grunnskólabarna í Reykjavík. Rannsóknir hafa sýnt að engin ein breyta hefur viðlíka jákvæðari margföldunaráhrif til góðs fyrir árangur og vellíðan barna í skóla eins og jákvæð og hvetjandi viðhorf foreldra til náms barna sinna. En ekki bara til náms, heldur einnig til félagslífs, óformlegs náms og sköpunargleði. Því hefur Reykjavíkurborg í samstarfi við grunnskóla, félagsmiðstöðvar og foreldra, blásið til hæfileikakeppni meðal 15 ára ungmenna, Písa Keik 2012. Þar gefst 10. bekkingum tækifæri til að láta ljós sitt skína í gegnum sköpun og listir. Við biðjum unga fólkið að íhuga með okkur svarið við spurningunni: Hvers vegna finnst þér mikilvægt að gera þitt besta? Við vitum að það stendur ekki á svörunum. Og við skulum leggja við hlustir.
Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar