Innlent

Stöðva sölu á humarhölum

Veislumatur Mörgum þykir grillaður humar lostæti.
Veislumatur Mörgum þykir grillaður humar lostæti. Fréttablaðið/Hörður
Stöðvuð hefur verið sala á Blámar-humarhölum og varan kölluð af markaði, að því er fram kemur í tilkynningu Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja.

Innköllunin er sögð til komin vegna þess að ekki komi skýrt fram á umbúðum vörunnar að hún innihaldi brennisteinsdíoxíð (súlfít), sem sé ofnæmis- og óþolsvaldur. Efnið er auðkennt sem E223 á umbúðunum, en fram kemur í tilkynningu að notkun E-númers eingöngu teljist ekki skýr merking á ofnæmis- og óþolsvaldinum heldur verði heiti hans að koma fram. - óká




Fleiri fréttir

Sjá meira


×