Nær 2.000 íbúðir í eigu ÍLS 6. júní 2012 08:30 Af íbúðum í eigu Íbúðalánasjóðs eru 270 á byggingarstigi en 800 standa auðar. fréttablaðið/hag
Um 800 einstaklingar og fjölskyldur leigja hjá Íbúðalánasjóði. Leigjendum hefur fjölgað hratt. Leigutekjur sjóðsins á árinu eru áætlaðar um 1.050 milljónir. Sjóðurinn verður bráðlega með um 400 eignir á sölu. Íbúðalánasjóður á nú um 1.950 íbúðir sem hann hefur þurft að leysa til sín vegna vanskila fyrirtækja og einstaklinga. Um 800 einstaklingar og fjölskyldur sem misst hafa íbúðir sínar leigja hjá sjóðnum og hefur þeim fjölgað hratt á síðasta ári, að sögn Ágústs Kr. Björnssonar, sviðsstjóra eignasviðs sjóðsins. „Þeir aðilar sem búa í íbúðunum þegar sjóðurinn yfirtekur þær öðlast rétt til áframhaldandi búsetu ef þeir óska þess. Þau fyrirtæki sem misst hafa íbúðir til Íbúðalánasjóðs eru fyrirtæki sem verið hafa í leiguíbúðarekstri.“ Af íbúðunum 1.950 eru 270 á byggingarstigi en 800 standa auðar. „Margar þeirra þarfnast umtalsverðs viðhalds og endurnýjunar og eru ekki íbúðar- eða leiguhæfar. Þá eru margar þeirra á svæðum þar sem offramboð er á eignum,“ segir Ágúst. Hann getur þess að Íbúðalánasjóður vinni nú að því að skrá á sölu um 230 eignir. „Þá verða um 400 af þessum eignum skráðar til sölu á fasteignasölum eða tæplega 40 prósent.“ Rekstarkostnaður er misjafn eftir því hvort eignir eru á byggingarstigi eða fullbúnar, að sögn Ágústs. „Gert er ráð fyrir að rekstrarkostnaður verði um 500 milljónir króna á þessu ári. Samkvæmt rekstraráætlun er gert ráð fyrir að leigutekjur verði um 1.050 milljónir króna á þessu ári.“ Í janúar í fyrra átti Íbúðalánasjóður um 1.070 eignir en í lok árs 2009 voru íbúðir í eigu sjóðsins 347. Ingibjörg Þórðardóttir, formaður Félags fasteignasala, segir söguna sanna að nær allar íbúðir sem Íbúðalánasjóður setji á markað séu á landsbyggðinni og það breyti litlu sem engu fyrir markaðinn, jafnvel þótt 230 íbúðir séu settar á sölu. „Svona smáskammtar eins og þeir eru að setja út hafa ekki nein áhrif,“ segir hún. Ljóst sé að stjórnvöld stefni að því að húsnæði í eigu Íbúða-lánasjóðs á höfuðborgarsvæðinu verði leigt út. Hún segir að það hugnist henni illa. „Sjóðnum var ekki ætlað það hlutverk að verða leigumiðlun,“ segir Ingibjörg. - ibs, sh
Mest lesið Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Innlent Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Innlent Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Innlent Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Innlent Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent Fleiri fréttir „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Sjá meira