Fylgst verður með aðsetrum dæmdra kynferðisbrotamanna Jón Hákon Halldórsson skrifar 6. júní 2012 10:40 Álfheiður Ingadóttir er formaður velferðarnefndar Alþingis.
Unnt verður að fylgjast með dvalarstað þeirra sem dæmdir hafa verið fyrir kynferðisbrot gegn börnum í framtíðinni. Barnaverndastofa mun sjá um eftirlitið og vinnur að verkferlum um það hvernig slíku eftirliti verður háttað. Þá stendur jafnframt til að breyta hegningarlögum þannig að unnt verði að dæma kynferðisbrotamenn til meðferðar. Barnaverndalögum var breytt í fyrra með slíka heimild í huga en Álfheiður Ingadóttir, formaður velferðarnefndar Alþingis, segir að enn eigi eftir að breyta almennum hegningarlögum til þess að skýra löggjöfina. Málið var rætt á fundi nefndarinnar í morgun með fulltrúum frá velferðarráðuneyti, innanríkisráðuneyti og Barnaverndastofu. „Eins hefur Barnaverndastofa, frá því að gerð var breyting á lögunum í fyrrra, verið að vinna verkferla sem tryggir það að upplýsingar frá Ríkissaksóknara um menn sem hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn börnum berist Barnaverndastofu og jafnframt að þau fái upplýsingar frá Fangelsismálastofnun úr sakaskrá um upphaf og lok afplánunar," bætir Álfheiður við. Hún segir að markmiðið sé að Barnaverndastofu verði unnt að fylgjast með aðsetri dæmdra kynferðisbrota gegn börnum á hverjum tíma þegar það þykir réttmætt vegna hagsmuna barnsins. Mönnum sé að vísu heimilt að breyta um nafn þótt þeir hljóti dóm. Hins vegar geti þeir ekki breytt um kennitölu og því sé möguleikinn á að fylgjast með þeim alltaf fyrir hendi. Álfheiður segir að frumvarp um breytingar á hegningarlögum verði lagt fram næsta haust. Um verði að ræða víðtækar breytingar á lögunum þar sem jafnframt verði kveðið á um þessi atriði sem varða kynferðisbrot gegn börnum. „Innanríkisráðuneytið er að vinna frumvarp sem gerir ráð fyrir því að dómstólar geti dæmt menn til tiltekins eftilits eftir að afplánun lýkur. Nefndin mun fá þau frumvarpsdrög til skoðunar þegar þau liggja fyrir," segir Álfheiður í samtali við Vísi.
Mest lesið Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Innlent Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Innlent Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Innlent Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Innlent Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent Fleiri fréttir Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Arion hækkar vexti á ný Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Sjá meira