Innlent

Fjöldi fólks fylgdist með Venus ganga þvert fyrir sólu

Fjöldi fólks safnaðist saman við Perluna í Reykjavík í gærkvöldi til þess að fylgjast þegar Venus gengi þvert fyrir sólu og voru skilyrði ákjósanleg.



Fyrirbærið sást aðeins í stjörnukíkjum og kom fram eins og smá blettur á sólinni. Þetta bryjaði snemma á ellefta tímanum og lauk rétt fyrir klukkan fimm í morgun.



Ekkert þýðir fyrir þá, sem misstu af þessu í nótt, að bíða þartil þetta gerist aftur, því það verður ekki fyrr en eftir 102 ár




Fleiri fréttir

Sjá meira


×