Innlent

Slegin óhug yfir ofbeldisverkum

Mótmælendur í Sýrlandi
Mótmælendur í Sýrlandi Mynd/AFP
Ísland lýsir yfir óhug og þungum áhyggjum af stöðu mannréttindamála í Sýrlandi og hvetur til þess að mögulegum kerfisbundnum brotum, sem kunni að reynast glæpir gegn mannkyni, verði vísað til Alþjóðlega sakamáladómstólsins.

Fjöldi ríkja gaf út sameiginlega yfirlýsingu þess efnis á fundi Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna í gær og var Ísland hluti af henni, að því er segir í frétt utanríkisráðuneytisins. Tilefnið er skýrsla rannsóknarnefndar mannréttindaráðsins um meint mannréttindabrot í Sýrlandi, þar með talin fjöldamorðin í El-Houleh. - sh




Fleiri fréttir

Sjá meira


×