Vill ekki „tákn um sundrungu“ hjá Jóni 29. júní 2012 04:00 Svarta Keilan Ef samþykkt skipulagsráðs verður staðfest í borgarráði stendur granítverk Santiagos Sierra ekki lengur andspænis aðalinngangi Alþingis heldur verður flutt á horn Kirkjustrætis og Thorvaldsensstrætis.Fréttablaðið/Pjetur „
Mér finnst að Jón Sigurðsson, okkar sameiningartákn, eigi að fá að vera þarna í friði,“ segir Marta Guðjónsdóttir, fulltrúi Sjálfstæðisflokks í skipulagsráði Reykjavíkur. Marta er andvíg því að listaverkið Svarta keilan verði á Austurvelli. Skipulagsráðið samþykkti fyrir sitt leyti á miðvikudag að „Svarta keilan, minnisvarði um borgaralega óhlýðni“ verði á hellulögðu torgi á horni Kirkjustrætis og Thorvaldsensstrætis. Verk Santiagos Sierra hefur verið á Austurvelli frá því í janúar. Sierra bauð borginni verkið að gjöf með því skilyrði að það yrði áfram á Austurvelli. Listasafn Reykjavíkur lagði til að gjöfin yrði þegin og menningarráð borgarinnar tók undir það. Hugmyndin var að Svarta keilan yrði framvegis í suðvesturhorni vallarins en ekki beint framan við Alþingishúsið. Alþingi lýsti sig hins vegar andvígt staðsetningu Svörtu keilunnar á Austurvelli yfirhöfuð þar sem verkið spillti heildarmynd Austurvallar. Marta segir afstöðu sína byggjast á því að Austurvöllur sé sögufrægur staður sem hafi verið vettvangur margra stórra atburða. Þar sé ekkert annað en blóm, tré og gras og síðan styttan af Jóni Sigurðssyni. „Þegar styttunni var komið fyrir þar var það hugsun manna að þarna væri aðeins ein stytta og að hún yrði af Jóni Sigurðssyni. Það er alls ekki við hæfi að við séum að koma fyrir einhverju sundrungartákni á þessum stað því Jón Sigurðsson var og er sameiningartákn þjóðarinnar,“ segir Marta sem kveður enn fremur óásættanlegt að þiggja listaverk með skilyrðum um staðsetningu. Hafþór Yngvason, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur, segir nýja staðarvalið koma til móts við sjónarmið Alþingis. Þá tekur hann ekki undir skilgreiningu Mörtu Guðjónsdóttur á eðli listaverksins. „Það er ekki sundrungartákn heldur lýðræðistákn sem minnir á grundvallarprinsipp lýðræðisins – að valdið liggur hjá fólkinu endanlega. Þess vegna þarf það að vera nálægt þinghúsinu sem er okkar helsta tákn um lýðræði,“ segir safnstjórinn. Marta hefur aðra sýn. „Þetta listaverk á að vera tákn um hrunið og búsáhaldabyltinguna en hvað var fólk að biðja um í búsáhaldabyltingunni? Það var að biðja um lýðræðisumbætur. Síðan þegar tekin er ákvörðun um staðsetningu þessa listaverks er fólkið sem bað um lýðræðisumbæturnar ekki spurt hvar verkið eigi að vera. Þá á bara að taka ákvörðunina í lokuðum bakherbergjum.“ gar@frettabladid.is
Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Fleiri fréttir Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Sjá meira